Ólétt af barni númer 2 og Kanye West sleppur vel frá samfélagsvinnu

Leikkonan Kristen Bell og leikarinn Dax Shepard eiga von á barni númer 2 einungis 16 mánuðum eftir fæðingu dóttur þeirra Lincoln.

„I can confirm that Kristen and Dax are expecting their second child and a sibling for Lincoln.“

Þetta sagði fulltrúi Kristen og Dax í viðtali við Entertainment Tonight og bætti við að öll fjölskyldan væri í skýjunum með þessar fréttir.

 

Kanye West sinnir nú samfélagsvinnu sem refsingu fyrir að ganga í skrokk á ljósmyndara sem varð á vegi hans. Flestir sem þurfa að sinna samfélagsvinnu eru látnir týna rusl en Kanye West heimsækir háskóla og heldur fyrirlestra um reynslu hans í tískuheiminum.

Í byrjun mars náði Kanye að forðast fangelsisdvöl með því að fallast á það að sinna 250 tímum af samfélagsvinnu og vera á skilorði í 24 mánuði. Kanye West sleppur því ákaflega vel frá leiðinlegu máli.

kanye-west-sentenced-2-years-probabtion-anger-management-photographer-scuffle-lax-the-jasmine-brand

 

SHARE