Ráðstefna í Hörpu þar sem Stony tók til máls

Á ráðstefnunni Sko, sem haldin var í Hörpu á fimmtudag, var sýnt nýtt heimildarmyndband þar sem Þorsteinn Sindri Baldvinsson, betur þekktur sem Stony, rekur hvernig netið skaut honum upp á stjörnuhimin á örskömmum tíma og kom honum í samband við alþjóðleg fyrirtæki og stórstjörnur. Um 400 manns sóttu ráðstefnuna sem fjallaði um markaðsmál á netinu og hvernig íslensk fyrirtæki geti nýtt netið betur í markaðsstarfi sínu. Það voru fyrirtækin Já og Góð samskipti sem stóðu að Sko. Stony var viðstaddur ráðstefnuna og hlaut dynjandi lófaklapp ráðstefnugesta eftir sýningu myndbandsins sem framkallaði gæsahúð margra viðstaddra.

„Sýnir einfaldlega hvað netið er klikkað“

Í heimildarmyndbandinu segir Þorsteinn Sindri Baldvinsson, betur þekktur sem Stony, frá því hvernig hann lærði að nota samfélagsmiðla á borð við Facebook, Twitter og YouTube, til að koma sér á framfæri. Hann deildi myndböndum af sér vera að tromma en sá fljótlega að hann yrði að gera eitthvað öðruvísi til þess að skera sig úr öðrum áþekkum myndböndum á netinu. Allt breyttist þegar hann gerði sína eigin útgáfu af þekktu lagi Macklemore, Can‘t Hold Us, þar sem hann notaði m.a. bílhurð, glös og örbylgjuofn til að búa til hljóðin og myndbandið sló í gegn.

Stony

Stony var í salnum og stóð upp í lok sýningar myndbandsins og fékk dynjandi lófaklapp viðstaddra

Stony lýsti því svo hvernig honum leið þegar hann fékk skilaboð nokkrum dögum síðar frá sjónvarpsmanninum Ryan Seacrest og var flogið út með dags fyrirvara á fund með forsvarsmönnum Pepsi í New York þar sem myndbandið hans var leikið upp á stórum skjá. Eins og allir vita lék Stony síðan í auglýsingu fyrir Pepsi með fremstu fótboltamönnum heims. Allt vegna myndbands sem hann gerði á tveimur klukkustundum heima á Akureyri. Stony lauk máli sínu á að segja að þetta sýndi einfaldlega hvað „netið er klikkað“.

Þó að Stony hafi verið yngstur fyrirlesara á ráðstefnunni þá virtust menn á því að þessi orð ættu vel við og vitnuðu nokkrir fyrirlesaranna í orð Stony, um hvað netið væri nú einmitt dálítið klikkað.

Telma Eir Aðalsteinsdóttir og Stony

Stony ásamt Telmu Eir Aðalsteinsdóttur, verkefnastjóra Já og einum af skipuleggjendum ráðstefnunnar Sko,

Aðrir sem tóku til máls á ráðstefnunni voru Pollyanna Vincent, stjórnandi hjá TripAdvisor, Arnt Eriksen, stofnandi Rethink, Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, Andrés Jónsson almannatengill og Magnús Hafliðason, rekstrarstjóri Domino‘s í Noregi.

 

Myndbandið:

SHARE