Ristilspeglun – hvaða gagn er að henni og hvernig er hún framkvæmd?

Hvað er ristilspeglun?

Hægt er að skoða endaþarminn og neðsta hluta ristilsins með fingurbreiðum málm- eða plasthólki, sem stungið er í mesta lagi 25 cm upp í þarminn. Áður fyrr var ekki hægt að skoða efri hluta þarmanna nema með röntgenmyndatöku. Skyggingarefni var dælt inn neðanfrá. Það fór um ristilinn og endaði við botnlangann þar sem hann mætir görnunum. Eftir að ristilsjáin kom til sögunnar eru slíkar röntgenmyndatökur nánast óþarfar.

Hvað er ristilsjá?

  • Áhaldið kallast eftir ristlinum sem einnig kallast kolon (gríska heitið).
  • Ristilsjáin er sveigjanlegt rör úr trefjaefni sem er allt að tveggja metra langt og búið sterku ljósi og skolunarbúnaði til að hreinsa linsuna, þannig að alltaf sjáist vel með sjánni. Einnig er hægt að blása lofti eða sjúga eftir þörfum.

Hvaða gagn er að ristilspeglun?

Hún gerir lækninum kleift að virða fyrir sér slímhúðina alla leið gegnum ristilinn, legu æða, sáramyndun, sepa, hnúða og æxli. Einnig er hægt að taka sýni úr slímhúðinni gegnum sjána, ef þörf er á þeim til sjúkdómsgreiningar.

Hvernig er ristilspeglun framkvæmd?

Ristilspeglun fæst ekki alls staðar á landinu þó að æ fleiri sjúkrahús bjóði upp á hana. Ristilskoðun er framkvæmd með léttri deyfingu. Róandi lyfi er sprautað í æð, og þú ert í léttu móki í þær 15-30 mínútur sem tekur að framkvæma skoðunina.

untitled

 

Tengdar greinar:

Átröskun og íþróttir

Ertu að kúka vitlaust?

Forvarnir gegn ristilkrabbameini

SHARE