Rob Kardashian og Blac Chyna hætt saman

Robert Kardashian (29) hefur eytt öllum myndum af unnustu sinni Black Chyna af Instagramreikningi sínum og hefur það kveikt getgátur um að vandamál séu í sambandi þeirra. Heimildir segja að það sé vegna þess að Rob hafi komist yfir fremur grunsamleg skilaboð í síma hennar, en þau hafa ekki enn gefið út tilkynningu þess efnis að þau séu hætt saman, eða hvort að það séu einhverjar stoðir undir þeim heimildum. Sagt er að þau hafi í kjölfarið rifist heiftarlega og náðist rifrildið á filmu.

Sjá einnig: Rob Kardashian og Blac Chyna með sinn eigin þátt

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Rob eyðir öllum ummerkjum um Blac, en síðast hreinsaði hann reikning sinn í mars síðastliðnum. Hann hafði einnig eytt henni af vinalistanum, en það varði þó ekki lengur en einn dag, því nú eru þau aftur orðin fylgjendur hvors annars.

Rob hefur sagt að það sé nánast ómögulegt að vera í venjulegu jákvæðu sambandi þegar svo mikil neikvæðni er í kringum það, bæði á samfélagsmiðlum og frá fólki.

Sjá einnig: Blac Chyna á von á dreng

rs_634x938-160528171141-634.Blac-Chyna-Rob-Kardashain-Sky-Beach-Club.tt.052816

SHARE