
Í nýjum gagnapakka úr máli Jeffrey Epstein kemur, meðal annars, fram hversu mikil samskipti voru milli hans og Sarah Ferguson, fyrrum hertogaynju. Samskiptin áttu sér stað bæði fyrir og eftir dóminn sem hann fékk og fangelsisvist.

Eitt af því sem hefur vakið hvað mestu athyglina er tölvupósturinn sem Sarah Ferguson sendi á Jeffrey, þar sem hún var að bjóða honum í fimmtugs afmæli Andrew, sem haldið var þann 26. febrúar 2010 í St. James’s Palace í London. Í póstinum stóð:
„Beatrice, Eugenie og ég viljum gjarnan bjóða þér að fagna með okkur, fimmtugsafmæli Papa/Andrew. Afmælið verður 26. febrúar 2010. Fordrykkur verður kl 19:30 og kvöldverður kl 20:30. Þemað verður jakkaföt og kokteilkjólar og þú þekkir mig, óþekkt og glens verður í fyrirrúmi svo þú skalt koma með gjafir, nærver þína og húmor.“
Jeffrey komst ekki í partýið. Hann hafði hlotið dóm í Bandaríkjunum árið 2008 fyrir að hafa ráðið unglingsstúlkur til kynferðislegrar þjónustu og var sloppinn úr fangelsi árið 2009 eftir að hafa setið af sér 13 mánuði af dómnum. Sarah og Jeffrey áttu fleiri samskipti í öðrum tölvupóstum þar sem hún lýsir Jeffrey sem „bróðurnum sem hún hefði alltaf viljað eiga“.

Annað sem hefur komið fram í þessum nýju gögnum er að Andrew hjálpaði Jeffrey að borga skuldir sínar eftir að hann hafði setið inni.














