
Halldóra Skúla heldur úti heimasíðunni Kvennaráð.is þar sem hún miðlar upplýsingum til kvenna varðandi breytingarskeið. Hún er lærður sjúkraliði og hóf að kynna sér allar hliðar þessa skeiðs þegar hún uppgötvaði sjálf að hún væri byrjuð á breytingarskeiðinu. Hún segist hefði viljað vita miklu fyrr hvers hefði mátt vænta og þess vegna vilji hún hjálpa konum sem vita ekki hvað er að gerast í líkama þeirra.
Halldóra segir að konur séu oft ekki teknar alvarlega þegar þær leita til lækna og að blóðprufur segi ekki alla söguna þegar kemur að breytingaskeiðinu heldur þurfi að meðhöndla konur eftir einkennum, því hormónin í blóðinu sveiflast upp og niður í hverjum mánuði.
Við tölum um áhrif á geðheilsu kvenna og Halldóra segir að sjálfsvígstíðni kvenna sé hæst á þessum tímapunkti lífs þeirra og það þurfi að taka alvarlega.
Fylgdu okkur á Facebook
Fylgdu okkur á Instagram
Fylgdu okkur á TikTok
Sjá einnig:
- Hvernig er best að þrífa kynfæri kvenna?

- 6 hundategundir sem henta fólki yfir sextugt

- Minnkaðu óreiðuna í eldhúsinu með 3 skrefum

- 15 hlutir sem þú vissir ekki um líkama þinn

- Sjálfvígstíðni kvenna hæst á breytingarskeiði – Kvennaráð

- Aspassúpa með ferskum aspas


Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














