Skondnar spurningar úr þjónustuveri Símans

1: ég er að flytja frá Akureyri til Reykjavíkur í eitt ár. Er hægt að flytja gsm númerið með sér til Reykjavíkur eða þarf ég að fá mér nýtt númer.

2: Nei, nei . þetta er eitthvað bilað hjá ykkur, ég er búin að hafa þetta símtæki í 40 ár , og hann fer varla að bila úr þessu!!!

3: Ég er að fara til USA á morgun, og ætla að taka GSM símann minn með. Þarf ég að taka hleðslutækið með líka.

4: Þegar maður er staddur í útlöndum, og hringir heim, þarf maður að setja 354 fyrir framan, en hvað þarf maður að setja fyrir framan þegar maður sendir tölvupóst erlendis frá???

5: Ég er með breiðbandið, og horfi mest á spænsku stöðina. Hún er svarthvít hjá mér, og ég er að horfa á matreiðsluþátt. Veistu nokkuð litinn á kökunni sem er á skjánum núna???

6: Hvað á þetta að þíða að loka símanum. Ég gerði allt upp hjá ykkur fyrir nokkrum mánuðum síðan.

7: ég var að pæla í að gefa stráknum mínum LSD. Getið þið reddað því fyrir mig ?(ADSL)

8: Ég stillti GSM símann minn á þýsku, en þegar ég sendi þýskri vinkonu minni SMS, fær hún þau bara á íslensku!!!!

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here