Solange Knowles gekk upp að altarinu um helgina

Drifhvítt brúðkaup sjálfrar Solange Knowles (28) og Alan Ferguson (51) fór fram í New Orleans nú um helgina en öll umgjörðin var glæsileg eins og ætla mætti, en Solange er systir sjálfrar Beyoncé og hefur verið iðin við útgáfu eigin tónlistar frá unga aldri.

.

Image by Rog Walker

Solange klæddist drifhvítu og var glæsileg í brúðarklæðum

.

Sterkur orðrómur hefur verið á reiki í allt sumar um yfirvofandi brúðkaup þeirra Solange og Alan, sem hafa lengi verið í tilhugalífinu en þau festu ráð sitt nú á sunnudag. Þema brúðkaupsins var drifhvítt og klæddust allir gestir hvítu – einnig brúðurin sjálf sem var stórglæsileg og kom til athafnarinnar á mjallhvítu reiðhjóli ásamt tilvonandi eiginmanni sínum, sem einnig hjólaði til kirkjunnar.

.

Image by Rog Walker

Ljósmyndarinn Rog Walker tók myndir af athöfninni sem var glæst í alla staði 

.

Solange sagðist í viðtali við Vogue þannig hafa verið umvafin ástvinum á stóra daginn, en sjálf klæddist brúðurin hönnun Humberto Leon frá Kenzo og var stórglæsileg ásýndar. Það var bandaríski ljósmyndarinn Rog Walker sem tók ljósmyndirnar sem sjá má við þessa grein, en þær eru áður birtar í Vogue sem einnig fékk frumbirtingarrétt á umfjöllun um sjálft brúðkaupið.

.

Image by Rog Walker

Takið eftir glæstri buxnadraktinni sem Solange klæðist úr smiðju tískuhúss Kenzo 

.

Eins og fram kemur í Vogue gekk Solange upp að altarinu við undirspil sinfóníusveitar sem lék tóna Donny Hathaway en hér má sjá Solange heyja danseinvígi við einkason sinn, Daniel Julez sem átti fyrsta dansinn við móður sína að lokinni athöfn:

Solange and Julez NO FLEX ZONE from Charlotte Hornsby on Vimeo.

SHARE