Sólskinsegg

Þessa dásemd fann ég á einni af uppáhaldsíðunum okkar hér á hun.is

http://allskonar.is

Sólskinsegg fyrir 4

Dásamlegur morgunmatur/hádegismatur eða forréttur sem samanstendur af mjúkri pönnuköku, reyktum lax, capers og lauk, steinselju, blæjueggi og hollandaise sósu. Algerlega fyrirhafnarinnar virði.

Þú getur svindlað ef þú leggur ekki í að útbúa sósuna sjálf/ur og notað pakkasósu, en æfingin skapar meistarann, það er lítið mál að útbúa sósuna en tekur um 10 mínútur að þeyta stanslaust. Enn og aftur sannast þar að fyrirhöfnin er þess virði, úr verður guðdómlega létt og mjúk sósa.

Blæjueggin er einfalt að gera og þau eru frábær tilbreyting frá venjulegum soðnum eggjum eða spældum.
Pönnukökuuppskriftin er sú sem ég nota alltaf í morgunpönnukökur, þú getur prófað að nota hana með beikoni og eggjahræru, hlynsýrópi og steiktum tómötum. Hún er líka frábær í klatta sem má smyrja og setja álegg á.

Undirbúningur: 15 mínútur

Eldunartími: 45-60 mínútur


PÖNNUKÖKUR (8-10stk)

  • 145 gr hveiti
  • 2 tsk lyftiduft
  • ½ tsk salt
  • 2 msk hrásykur
  • 1.5 dl mjólk
  • 1 egg
  • 2 msk ólífuolía

Settu þurrefnin í skál og blandaðu vel saman. Sláðu saman egginu og mjólkinni í annarri skál, þegar hefur blandast vel saman hrærðu þá olíunni út í eggjablönduna. Settu eggjablönduna samanvið þurrefnin og hrærðu í með gaffli. Deigið á að vera frekar þykkt en kekkjalaust. Láttu deigið standa í 5 mínútur áður en þú ferð að steikja kökurnar.

Hitaðu pönnu við meðalhita, settu örlítið af olíu í hana og steiktu pönnukökurnar. Ég vel að hafa þær á stærð við lummur, þannig er hægt að steikja 2-3 í einu á pönnunni. Helltu deiginu í pönnuna svo að þú fáir þá stærð á kökunum sem þú kýst, þegar loftbólur fara að myndast á yfirborðinu þá er tími kominn til að snúa kökunum og steikja hinu megin.

LAX

  • 200 gr reyktur lax
  • 2 tsk capers, fínsaxað
  • 1 skallottulaukur, fínsaxaður
  • 2 msk söxuð steinselja
  • ½ tsk salt

Skerðu laxinn í 2-3mm þykkar sneiðar og leggðu til hliðar.

Saxaðu saman capers, skallottulauk og steinselju og settu í litla skál, stráðu salti yfir og blandaðu öllu saman. Leggðu til hliðar.

HOLLANDAISE SÓSA

  • 2 eggjarauður
  • 2 msk kalt vatn
  • 90 gr mjúkt smjör, í litlum bitum
  • ½ tsk salt
  • ¼ tsk hvítur pipar
  • safi úr hálfri sítrónu

Settu vatn í pott og láttu koma upp að suðu, lækkaðu þá undir pottinum eins og þú getur svo að rétt aðeins sjóði. Best er ef sem minnst hreyfing er á vatninu. Veldu þér stóra góða hitaþolna skál og settu yfir pottinn, athugaðu að vatnið má alls ekki koma við skálina.
Settu eggjarauðurnar og vatn í skálina og þeyttu vel, það er ágætt að nota handþeytara. Þegar eggjarauðurnar hafa tvöfaldast að ummáli og orðnar léttar og ljósgular bætirðu smjörinu við, einum litlum bita í einu.  Passaðu vel hitann undir skálinni, vatnið má ekki sjóða því að þá verður hitinn of mikill og þú endar með eggjahræru í stað sósu. Mér hefur reynst best að slökkva undir pottinum þegar ég fer að bæta smjörinu út í, hitinn helst nægur í skálinni til að bræða smjörið. Þeyttu stöðugt, bættu við öðrum smjörbita þegar sá fyrri hefur blandast við sósuna og svo áfram koll af kolli þar til smjörið er allt komið út í sósuna.

Taktu þá skálina af pottinum og þeyttu salt og pipar ásamt sítrónusafanum út í.

BLÆJUEGG

  • 4 stór egg
  • 3 msk hvítvínsedik
  • 3L vatn

Settu vatnið í pott og edikið út í. Láttu suðuna koma vel upp og hrærðu í pottinum til að mynda litla hringiðu eða fá góða ferð á vatnið um pottinn. Brjóttu eitt egg í einu í lítinn bolla og settu rólega út í pottinn, láttu bollann með egginu síga varlega ofan í og láttu vatnið svo grípa eggið. Það eldast á fleygiferð í vatninu, passaðu að suðan detti ekki niður. Sjóddu eggið í 3 mínútur, taktu upp úr vatninu og leggðu á disk. Sjóddu næsta egg alveg eins og koll af kolli.

SAMSETNING

Settu á disk eina pönnuköku, ofan á hana seturðu 1 msk af Hollandaise sósu. Þar ofan á seturðu 1 tsk af steinseljublöndunni, 2-3 laxasneiðar næst ofan á og svo örlítið meira af steinseljublöndunni. Settu þar næst egg ofan á allt saman og helltu 1-2 msk af Hollandaise sósu yfir.

Njóttu vel!

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here