Söngkonan Selena Gomez þjáist af rauðum úlfum

Söngkonan Selena Gomez hefur neyðst til að aflýsa fjölda tónleika vegna veikinda. Afi og amma söngkonunnar hafa nú staðfest hvað er að hrjá söngkonuna, en Selena þjáist af rauðum úlfum eða lupus. Selena hlýtur nú viðeigandi meðferð á meðferðarheimili í Arizona í Bandaríkjunum en afi hennar segist hafa áhyggjur af henni.

„What worries us more is that she doesn’t know how to say no. She won’t take time for herself to relax, to eat well.”

Afi hennar segir einnig að dagkráin hennar sé það þétt skipuð að hún fái aldrei dagsfrí og sé því gífurlega mikið álag á henni.
Nokkur ár eru síðan söngkonan var greind með sjúkdóminn en þetta er í fyrsta skipti sem hann hefur haft áhrif á líf hennar.

SelenaGomez

SHARE