Staðfest! – Justin Timberlake er á leiðinni til Íslands

Kórinn í Kópavogi verður miðdepill alheimsins þann 24. ágúst

Það er okkur einstök ánægja að tilkynna um komu eins vinsælasta tónlistarmanns heims! Hinn eini sanni Justin Timberlake kemur fram hérlendis sunnudaginn 24. ágúst á sannkölluðum risatónleikum, ásamt hljómsveit sinni The Tennessee Kids. Tónleikarnir verða haldnir í Kórnum í Kópavogi, sem verður þar með einn af viðkomustöðum á heimstónleikaferðalagi söngvarans.

Það er óhætt að fullyrða að Timberlake sé á hátindi ferilsins um þessar mundir, en metsöluplötur söngvarans, The 20/20 Experience og The 20/20 Experience – 2 of 2, tóku yfir vinsældalista um allan heim á síðasta ári. Nú gefst Íslendingum til að sjá og heyra Timberlake flytja tónlistina sína á stórfenglegum tónleikum.

Timberlake hefur hefur notið feiknamikillar hylli frá því seint á níunda áratugnum og er þekktur fyrir sérstaklega glæsilega tónleika. Á því verður engin ungantekning þegar hann stígur á svið í Kórnum, enda má búast við her tækni- og listamanna til landsins. Með tónleikunum verður Kórinn vígður sem tónleikastaður, en höllin er kjörinn vettvangur fyrir tónleika af þessari stærðargráðu.

Við leggjum ríka áherslu á að sem minnst truflun hljótist af tónleikunum fyrir íbúa Kórahverfis sem og að aðgengi fyrir tónleikagesti verði með sem allra besta móti. Til þess að allt fari sem best fram verður umferð stjórnað í samráði við bæjaryfirvöld og lögreglu. Bílastæði fyrir tónleikagesti verða á þremur stöðum í hverfinu og stöðugar rútuferðir verða á milli bílastæða og tónleikahallarinnar fyrir gesti þennan dag. Sérstök stæði við höllina verða fyrir fatlaða og þá sem koma á reiðhjólum. Einnig verður biðstöð nálægt húsinu fyrir leigubíla.

———-

Miðasala hefst fimmtudaginn 6. mars kl. 10 á Miði.is. 

16.000 miðar í boði á þremur verðsvæðum. 

Miðaverð og fyrirkomulag miðasölu verður tilkynnt í smáatriðum á allra næstu dögum.

joiningteam

SHARE