Stórskotalið listamanna á opnunarhátíð Hinsegin daga í Hörpu í kvöld!

Hinsegin dagar eru nú í fullum gangi í Reykjavík. Í gær fór fram vel sótt hinsegin leiðsögn um Grasagarð Reykjavíkur en um kvöldið breyttist Sundhöll Reykjavíkur í tónleikahöll þegar tónleikarnirDívur og dýfur fór þar fram. Þau Felix Bergsson, Helga Möller, Elín Ey og Josefin Winther stigu á stokk á meðan sundkappar úr Íþróttafélaginu Styrmi sýndu dýfingalistir sínar af brettinu.

Dagskráin er enn þéttskipuð og nægur tími enn til fagnaðar en  í dag hefur umræða og fræðsla verið í fyrirrúmi. Í hádeginu stóðu Hinsegin dagar þannig fyrir umræðufundinum Nekt, kynlíf og önnur tabú þar sem fjölmörgum áleitnum, en mikilvægum spurningum var velt upp.

Á sama stað klukkan 17 mun Kitty Anderson stofnandi Intersex Ísland halda fyrirlestur um reynslu sína af því að lifa sem Intersex einstaklingur á Íslandi. Kitty hélt afar áhrifaríka ræðu í lok sýningar heimildarmyndarinnar Intersexion í Bíó Paradís síðastliðið þriðjudagskvöld áður en hún svaraði spurningum áhorfenda.


Í kvöld hefst svo stuðið fyrir alvöru þegar 
talið verður niður í partígírinn og opnunarhátíð Hinsegin daga haldin með pompi og prakt í Hörpu. Sjálft húsið opnar klukkan 20:30 en dagskrá hefst stundvíslega klukkan 21. Opnunarhátíð Hinsegin daga hefur um árabil verið einn af vinsælustu viðburðum hátíðarinnar enda um sannkallað ættarmót hinsegin fólks að ræða. Í ár stígur stórskotalið listamanna á svið en þar má nefna Pál Óskar, Siggu Beinteins, Hafstein Þórólfsson, Hinsegin kórinn og fleiri en í ár kemur skemmtikrafturinn vinsæli Willam úr RuPaul‘s Drag Race, sérstaklega hingað til lands til að skemmta á opnunarhátíð Hinsegin daga.

Miðasala á opnunarhátíðina er enn í fullum gangi í Kaupfélagi Hinsegin daga að Suðurgötu 3 og á www.harpa.is.

Nánar á www.reykjavikpride.com og www.facebook.com/reykjavikpride

SHARE