Súkkulaði unaður – Uppskrift

Algjör draumur í dósum………

Það slær fátt út að narta í gott súkkulaði. Ekki satt? En hérna er eitthvað sem gæti jafnvel slegið það út. Það er ágætt að smyrja þessu á haustkex, saltstangir, eplabita já, eða bara borða það með skeið.

 

Efni:

  • 1/2 bolli lint smjör
  • 1/3 bolli púðursykur (þjappaður)
  • 225 gr. hreinn, mjúkur rjómaostur
  • 1 bolli flórsykur
  • 1 tsk. vanilla
  • 1/4 bolli kókó
  • 1/2 bolli hvítt súkkulaði, brytjað

Aðferð:

  1. Hrærið smjöri og púðursykri vel saman í hrærivél.
  2. Bætið rjómaostinum, flórsykri, vanillu og kókó út í.
  3. Bætið hvítu súkkulaðibitunum út í og hrærið á minnsta hraða og kælið svolitla stund.

Njótið vel!

Tilbrigði:

Sleppið hvíta súkkulaðinu en bætið 1 matsk. af kókó út í.

 

 

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here