Súkkulaðikaka með Kit kat og m&m

Þessi myndi slá í gegn í hvaða boði sem er. Uppskriftin kemur frá frá Ragnheiði á Matarlyst á Facebook.

Hráefni

250 g hveiti
400 g sykur
125 g kakó
1½ tsk lyftiduft
1½ tsk matarsódi
1 tsk salt
2 egg
200 g mjólk
110 g olía t.d isio4
4 tsk vanilla extrakt eða vanilludropar
120 g volgt vatn
120 g kaffi uppáhelt (má nota vatn í staðinn)

Aðferð

Hveiti, sykur, kakó, lyftiduft, matarsódi, og salt er sett í hrærivélaskálina blandið saman með háfnum þar til komið er vel saman. Bætið út í eggjum, mjólk, olíu og vanillu hrærið saman í 1½ mín Bætið í lokin út í vatni og kaffi athugið að blandan verður mjög þunn.

Gott er að smyrja og hveitistrá form eða setja bökunarpappír heilar arkir ofaní 2 hringform, hellið deiginu ofaní formin.

Bakið við 180 gráður og blástur í 25-30 mín.

Eða

Setjið í bökunnarpappír ofaní skúffukökuform eða eldfast mót hellið deiginu ofaní og sléttið úr því.

Bakið við 180 gráður og blástur í u.þ.b 35-40 mín.

Kælið botnana áður er smjörkrem er sett á.

Smjörkrem

Þetta smjörkrem er létt og fluffy

Hráefni

200 g smjör við stofuhita
220 g flórsykur
6 msk kakó (u.þ.b 60 g)
1 egg
1 tsk vanilludropar
1 msk rjómi eða mjólk

Aðferð

Setjið öll hráefni saman í hrærivélaskálina þeytið í 10 til 20 mín.

Setjið ofaná kökuna þegar hún hefur kólnað alveg.

Skreytið að vild.

Kakan hér að ofan er einn botn.

Skreytti með því að setja helminginn af smjörkreminu á botninn dreifi því jafnt yfir, sker Kit kat í tvennt notaði 5-6 stk raðaði því allan hringinn og setti svo m&m yfir.

Á hinn botninn setti ég hinn hlutann af kreminu.

SHARE