Sumarhús í skandinavískum stíl – Myndir

Í fallegu umhverfi Vega sem er lítil eyja við strendur Noregs situr þetta einstaklega fallega sumarhús á klettasyllu niðri við sjóinn.  Viðarklæðningin utan á húsinu hefur verið látin veðrast sem gerir það að verkum að viðurinn gránar og fellur þ.a.l. vel inn í grýtt landslagið. Einfaldleikinn er allsráðandi innandyra þar sem notagildi ásamt náttúrulegu vali á efnivið og hlýjum litatónum er einkennandi.

Arkitektar: Kolman Boye Architects
Ljósmyndir: Åke E:son Lindman

SHARE