Tartalettur með grísku salati – Uppskrift

Þú gætir notað þennan klassíska gríska mat t.d sem forrétt í veislu með því að bera salatið fram á nýjan hátt. Þú setur salatið í tartalettur og berð það þannig fram. Við mælum með að nota báðar tegundirnar ostana en auðvitað er alveg nóg að nota bara aðra.

Efni:

1 pakki tartalettur

140 gr. frosið spínat

1/8 bolli feta ostur (brotinn í litla bita)

1/8 bolli geitaostur (brotinn í bita)

1/4 bolli valhnetur (saxaðar og ristaðar)

1/8 tsk. múskat (notið nýtt múskat ef það fæst! )

rifinn börkur af hálfri sítrónu

Salatið nægir í 15 tartalettur 

Aðferð:

Bregðið spínatinu ofan í sjóðandi vatn í u.þ.b. 2 mín. Takið það úr vatninu og látið kólna. Saxið  spínatið ( ekki smátt). Blandið ostum, hnetum, múskati og sítrónuberki saman við spínatið (best að‘ nota gaffal til að blanda). Fyllið tartalettur með salatinu og setjið á ofnplötu. Hitið við 180 ⁰ í 8-10 mín.

Berið fram og njótið vel!

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here