„Það er við hæfi að ég drepi mig hér“ – Maður fannst hengdur á skólalóð

Séra Jakob Ágúst Hjálmarsson skrifaði á blogg sitt í gær frá manni sem hengdi sig á skólalóð fyrir stuttu síðan og birtir þar hluta af bréfi sem maðurinn skildi eftir sig. Maðurinn var á fertugsaldri, var með háskólapróf og hafði verið með góða vinnu.

Á bloggi Jakobs segir:

Hann stóðst svo ekki álagið og dró sig í hlé. Ekki var á honum óreglan, en hann þurfti á þunglyndislyfjum að halda sem honum var misleitt að taka. Hann lét eftir sig bréf og ég birti með leyfi aðstandenda part úr bréfi hans:

„ Það er við hæfi að ég drep mig hér þar sem ég lærði að hata lífið.

 

Árum saman hafði ég engan annan tilgang í því að fara á fætur á morgnana en að vera hataður og niðurlægður einn dag í viðbót hér í þessari skítlegu hatursstofnun. Eina leiðin fyrir mig á þessu tímabili að sofna á kvöldin var að hugsa um dauðann. Það var svo slakandi að ímynda sér að maður þyrfti aldrei aftur að koma hingað í haturspyttinn. Ég var orðinn það góður í þeirri hugleiðslu að stundum fann ég algera kvíðalosun og ró, ógeðslegheit lífsins hreinlega gufuðu upp og dauðinn var lausnin. En ég hafði aldrei kjark í að framkvæma það, enn þann dag í dag á ég erfitt með það. Með því að koma hingað þá vonandi hellist  viðbjóður lífsins yfir mig og ég get loksins drullast til að kála mér eftir að hafa ætlað það í öll þessi ár. Partur af huganum einfaldlega vill koma hingað í þessa gömlu þjáningu og deyja þar.

Ég man ekki eftir að hafa lært mikið annað hér en að hata sjálfan mig, hata þetta líf og hata þetta djöfullega sjúka hjarðdýr sem mannskepnan er. Ég lýk mínu hatursnámi hér þar sem ég hóf það…“

Jakob segir jafnframt:

Hér er lýst mikilli kvöl og sorg, reiði og missi. Gleðinni var rænt úr lífi hans og ógeði fyllt á í staðinn. Þversögnin að honum var orðið betri dauðinn en lífið og að það sé einhver huggun í því birtir ömurleikann betur en flest annað. „Betra er lifðum en ólifðum“ er ekki algild sannindi.

Að börn geti átt hlut að því að skapa skólafélögum sínum slíkan ömurleika um leið og þau láta upptendrast af löngun til þess að hjálpa litlum svöngum börnum í útlöndum eða hlaupa út um allt að leita að týndum ketti er óskiljanlegt.

Lestu alla færslu Jakobs hér!

SHARE