Titrari sem hægt er að setja ösku í

Hvernig vilt þú láta minnast þín þegar ævidagar þínir eru á enda? Hvernig minnngarathöfn myndir þú helst kjósa?  Hvað með að láta öskuna hvíla í sérútbúinni ösku sem er kynlífsleikfang, svo makinn geti notið ásta með þér út fyrir gröf og dauða?

21-grams-urn

Hljómar of ógeðfellt til að vera satt? Er tilhugsunin jafnvel ögrandi? Jafnvel hugmyndin hljómi fjarstæðukennd? En slík askja er til; listamaðurinn og vöruhönnuðurinn Mark Sturkenboom, sem stendur að baki hugmyndinni vonast meira að segja til að slíkar öskjur verði alvanalegar eftir fáein ár.

Sjá einnig: Hjálpartæki ástarlífsins – Þetta vissir þú ekki! – Myndir

21-gram2

Hér er boxið; minningaboxið og það inniheldur hálsmen til minningar um látinn ástvin. Magnara sem er ætlaður að hjóðvarpa tónlist sem minnir þig á liðnar stundir, ilmúða sem er ætlað að framkalla góða líðan – en rúsínan í pylsuendanum mun sjálfur dildóinn sem er gullhúðaður.

cremation-ashe-dildo-21-grams-mark-sturkenboom-6

Óviðeigandi myndu margir segja (og undirrituð tæki undir þau orð) en það er dildóinn sem inniheldur ösku hins látna. Og vekur hvað mestu athyglina.

Sjá einnig: 5 góðar ástæður fyrir því að konur eigi að stunda meiri sjálfsfróun

cremation-ashe-dildo-21-grams-mark-sturkenboom-5

Sjálfur segir Mark um öskjuna góðu:

Söknuðurinn eftir nándinni og kynlífinu er hluti af því sorgarferli sem eftirlifandi maki fer í gegnum við fráfall ástvinar. Þetta er í raun grunnhugmyndin að baki 21 Grams. Öskuílátið, sem er dildó – veitir eftirlifandi ástvini þann möguleika að viðhalda lostanum eftir andlátið.

Aðspurður hvernig hann fékk þessa undarlegu hugmynd svarar hann:

Ég hjálpa stundum eldri konu með matvörurnar, en hún er með ílát í glugganum þar sem aska eiginmanns hennar hvílir. Hún talar alltaf um látinn eiginmann sinn af svo mikilli virðingu og ást en krukkan sjálf endurspeglar ekki þær tilfinningar sem hún lýsir.

Á sama tímaskeiði var ég mikið að velta kynlífi fyrir mér; eftirlifandi ekkjum, því sem ekki má og kynferðislegri nánd. Skyndilega hugsaði ég svo: – Get ég ekki sameinað þessar hugsanir og mótað úr verk sem er bæði óður til ástarinnar, söknuðarins og nándarinnar?

Ílátið, sem ber heitið 21 Grams – sem margir segja að sé sú þyngd sem sálin vegur – varð að lokum úr og má sjá á meðfylgjandi myndum.

Það er ekki öll vitleysan eins.

SHARE