Töff íbúð með svefnlofti – Myndir

Þessi flotta íbúð er í miðborg Stokkhólmar.  Stílhrein hönnun gleður augað og ekki sakar lofthæðin sem er 4,2m.  Hvítt í hólf og gólf, stórir og fallegir gluggar í eldhúsinu ásamt fallegri verönd út í garðinn.  Granít er á borðum í eldhúsi, eldhústæki stálburstuð og góð vinnuaðstaða þar af.  Opin borðstofa nær að flæða og tengja íbúðina á fallegan hátt við stofuna.  Smart baðherbergi með hita í gólfum.  Það eru 3 svefnherbergi og þar af eitt upp á lofti, hreint út sagt dásamleg íbúð.

SHARE