„Tók svakalega á mig andlega“

Kristbjörg Jónasdóttir var í fitness keppnisformi þegar hún varð ólétt að syni sínum og átti erfitt með að sjá líkamann breytast á meðgöngunni. Hún setti sér óraunhæf markmið um að komast strax aftur í form, en í dag er hún í góðu jafnvægi og líður vel.

„Ég er að deyja úr spenningi og á örugglega eftir að fara yfir um á þessum leikjum,“ segir Kristbjörg Jónasdóttir, einkaþjálfari og unnusta Arons Einars Gunnarssonar, fyrirliða íslenska landsliðsins í fótbolta, sem spilar sinn fyrsta leik á EM næstkomandi þriðjudag.

Var sjálf í fótbolta

Hún æfði sjálf fótbolta langt fram á unglingsár, þekkir því leikinn vel og nýtur þess að fylgjast með. Hún mætir ekki bara á völlinn að styðja sinn mann af eintómri skyldurækni. Áhuginn er einlægur. „Mér finnst þetta þvílíkt skemmtilegt og það er ekkert skemmtilegra en að horfa á hann spila.“

Kristbjörg efast ekki um strákarnir verði landi og þjóð til sóma á franskri grundu. „Ég er nokkuð viss um að þeir komast upp úr þessum riðli og ég þarf örugglega að framlengja ferðina mína,“ segir hún kímin. „Ég met það líka út frá því hvað strákarnir segja sjálfir, að þetta sé besta lið sem þeir hafa spilað með. Ég sé til dæmis alveg mun á Aroni þegar hann er að spila með Cardiff og landsliðinu.“

Vinkonur koma og fara

Kristbjörg flutti út til Cardiff fyrir tæpum fjórum árum, þar sem Aron spilar með Cardiff City, og hún kann vel við sig á Bretlandi.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég bý í útlöndum og ég er búin að koma mér vel fyrir í Cardiff. Það voru auðvitað töluverð viðbrigði að fara út. Allt í einu hafði ég ekki vini mína og fjölskyldu í kringum mig og stólaði mest á Aron. Ég eignaðist reyndar strax góðar vinkonur sem voru kærustur liðsfélaga Arons, en fótboltinn er þannig að fólk kemur og fer. Maður er alltaf að kynnast nýjum stelpum, svo eru leikmennirnir seldir og fara annað og þær fylgja með,“ segir Kristbjörg, en bætir við að ákveðinn kjarni hafi þó spilað saman í lengri tíma. Hún er í mestu sambandi við tvær stelpur og mennirnir þeirra eru einmitt góðir vinir Arons.

Ekki eintómt glamúrlíf

Kristbjörg viðurkennir að hún hafi ekki alveg vitað við hverju hún átti að búast þegar hún fór að búa með atvinnumanni í knattspyrnu. „Ég hélt að ég væri að fara í þennan „footballers wives“ pakka fyrst þegar ég fór út. En nei, þetta er alls ekki þannig. Allar þessar stelpur sem ég hef kynnst úti eru mjög venjulegar og ótrúlega fínar. Fólk heldur oft að þetta sé eintómt glamúrlíf, að ég sitji bara í sólbaði allan daginn, en ég get sagt það hér og nú að þannig er það ekki. Þetta er ekki bara dans á rósum og svona líf getur tekið á andlega. Sérstaklega þegar strákarnir komast ekki í liðin og fá ekki að spila, eða ef meiðsli eru að hrjá þá. Það getur tekið á báða aðila. Við höfum það vissulega gott en það fylgja þessu gallar.“

Sonurinn breytti lífinu

Kristbjörg og Aron eignuðust soninn Óliver Breka fyrir fjórtán mánuðum og við það breyttist líf hennar mikið. Nýr kafli hófst með nýjum áskorunum. „Ég var mikið að keppa í fitness og þegar ég flutti út hafði ég allan þann tíma sem ég þurfti til að undirbúa mig fyrir mót. Ég fékk líka tækifæri til að komast á fleiri mót því það var mun auðveldra fyrir mig að ferðast á milli og ég nýtti mér það alveg þangað til ég varð ólétt,“ segir Kristbjörg sem hefur reynt að passa upp á það, eftir að sonurinn fæddist, að hún fái reglulega tíma fyrir sjálfa sig. Hann fer á dagheimili þegar hún þarf að komast í ræktina eða sinna öðrum erindum og hún ræður í raun sjálf hve lengi hann dvelur í einu. Svo hafa hún og Aron aðgang að barnfóstru ef þau vilja kíkja saman út á kvöldin. „Þetta gengur allt bara ótrúlega vel,“ segir Kristbjörg og brosir.

Fékk meðgöngueitrun

Hún viðurkennir reyndar að síðustu tvö árin hafi verið strembin á köflum. Aron er búinn að vera töluvert í burtu í landsliðsferðum vegna undankeppni EM og það hitti einmitt þannig á að sonurinn kom í heiminn þegar hann var slíkri ferð. „Ég vissi að hann þyrfti að fara í þessa ferð og honum leið sjálfum mjög illa yfir því,“ segir Kristbjörg, en það var viðbúið að sonurinn gæti fæðst á meðan Aron var í burtu. „Ég setti honum þó það skilyrði að ef hann yrði ekki viðstaddur fæðinguna þá yrði hann að fara á EM í staðinn, og það tókst.“

Kristbjörg var komin með einkenni meðgöngueitrunar undir lok meðgöngunnar og var búin að reyna að fá það í gegn að vera sett af stað áður en Aron færi í ferðina, en það gekk ekki. „Þetta var ógeðslega erfitt og ég vildi svo mikið hafa hann hjá mér, en við tókum þessa ákvörðun saman. Ég reyndi samt gjörsamlega allt til að koma fæðingunni af stað. Fór upp og niður stiga, gerði hnébeygjur og ýmsar æfingar. Svo ætlaði ég að reyna að halda honum inni, en það gekk ekki heldur. Daginn eftir að Aron fór var ég sett af stað vegna meðgöngueitrunar.“

Náði fæðingunni á FaceTime

Kristbjörgu fannst ljósmæðurnar ekki hlusta nógu vel á sig og hún telur sjálf að meðgöngueitrunin hafi byggst upp hægt og rólega. Hún var orðin slæm af bjúg og hafði þyngst mikið á meðgöngunni, þrátt fyrir að hugsa vel um sig og borða hollan mat.

„Þetta gerðist svo allt mjög hratt eftir að ég var sett af stað og Aron rétt náði þessu á FaceTime. Hann sá því eitthvað,“ segir Kristbjörg og hlær. „Þetta var auðvitað leiðinlegt fyrir hann og örugglega skrýtið að fara svona í burtu, koma til baka og þá er allt í einu ný manneskja á heimilinu. Ég sé samt ekki eftir neinu og okkur fannst þetta rétt ákvörðun á þeim tíma.“

Erfitt að fara úr fitness lífsstílnum

Það sem var Kristbjörgu erfiðast í öllu þessu ferli var þyngdaraukningin á meðgöngunni. Að fara úr fitness lífsstílnum yfir að vera ólétt og geta ekki æft af fullum krafti. Svo kom það henni líka á óvart hvað það tók hana langan tíma að komast aftur í form eftir meðgönguna.

„Þetta var allt öðruvísi en ég bjóst við. Ég var nýbúin að keppa þegar ég varð ólétt og var í keppnisþyngd. Ég þyngdist því alveg um 28 kíló á meðgöngunni. Þetta voru svakaleg viðbrigði fyrir mig. Ég setti mér það markmið að vera komin í form þremur til sex mánuðum eftir fæðingu. En það var mjög óraunhæft og ekki að fara að gerast. Ég fann að mér fannst mikilvægara að eyða tíma með syni mínum og kynnast honum í staðinn fyrir að einbeita mér að því að borða rétt og æfa eins og brjálæðingur. Gefa mér tíma til að ná tökum á þessu nýja hlutverki og sinna því. En þetta tók svakalega á mig andlega,“ segir Kristbjörg einlæg.

Mikill lærdómur

„Það var svo eftir um átta mánuði að ég fann að ég var tilbúin til að setja meiri vinnu í mig sjálfa. Fann að ég hafði kraft og metnað til að æfa og taka mataræðið í gegn. Þá var Óliver líka orðinn meðfærilegri. Ég vil því meina að þetta hafi allt gerst í réttri röð og á réttri tímalínu. Það tekur líkamann 40 vikur að undirbúa sig fyrir fæðingu og það er ekkert óeðlilegt að það taki hann 40 vikur að jafna sig eftir hana. Ég hugsaði með mér að þetta kæmi með tímanum og það gerði það. Þetta er eitt það erfiðasta sem ég hef gengið í gegnum og var mikill lærdómur fyrir mig, en ég myndi ekki breyta neinu þó ég fengi tækifæri til þess.“

Skrýtið að sjá kílóin hlaðast upp

Hún segir það hafa verið skrýtið að fylgjast með líkama sínum breytast á meðgöngunni, sjá húðina verða slappari og kílóin hlaðast upp. „Ég hugsaði oft hvort ég ætti einhvern tíma eftir að verða aftur eins og ég var. En ég lærði að með þolinmæði þá er allt hægt. Mér líður ótrúlega vel í dag og er í góðu jafnvægi. Ég stunda heilbrigðan lífsstíl, mæti í ræktina og leyfi mér ýmislegt. Þegar sonur minn fæddist hófst nýr kafli í mínu lífi og hann breytti mér til hins betra.“

Kristbjörg er þó ekki bara í fullu starfi við að vera móðir hins orkumikla Ólivers Breka, því fyrir um ári keyptu þau hjónaleysin fyrirtækið Brasilian Tan, sem sérhæfir sig í brúnkukremum. Kristbjörg sér um reksturinn, með dyggri aðstoð systur sinnar, og er að reyna að koma vörunum á markað í Bretlandi.

 

Kristbjörg á snapchat og instagram

Kristbjörg ákvað að draga sig í hlé frá fjarþjálfun þegar sonur hennar fæddist en nú heldur hún úti snapchat og instagram reikningum þar sem hún birtir myndir og myndbönd af æfingum og hugmyndum af næringarríkum mat. Áhugasamir geta fylgst með henni hér:
Snapchat : krisjfitness
Instagram: krisj_fitness

 

Mynd/Rut

SHARE