Tom Hiddleton vill eyða lífi sínu með Taylor Swift

Tom Hiddleton hefur sagt við Taylor Swift að hann vilji eyða það sem eftir er lífi sínu með henni. Vinir þeirra létu hafa eftir sér að hann væri að veita henni mikinn innblástur í að skapa nýja tónlist á ferðalögum þeirra undanfarið.

Parið hefur aðeins verið saman í um það bil mánuð og á meðan hefur verið geysistormur í kringum þau. Þau hafa þurft að sitja undir mikilli gagnrýni ásamt því að Kim og Kanye hafa verið í rifrildi við Taylor að gömlum vana. Kim tók upp samtal sem Kanye átti í símann við Taylor, þar sem hann átti að hafa verið að spyrja hana hvort að hann mætti nota nafnið hennar í eitt laga sinna og að hún hafi samþykkt það. Því næst fer Kim beint á netið og deilir þessu hljóðbroti. Taylor fannst það fyrir neðan allar hellur, fór á Twitter og skrifaði þessi skilaboð:

Augnablikið sem Kanye West tekur upp símtalið við þig og Kim deilir því á internetið með skjámynd og orðum.

Tom lætur leiðinlegt umtal ekki hafa áhrif á ást sína til Taylor og segja þau sem til þekkja að hann hafði búist við neikvæðnini þegar hann ákvað að fara í þetta samband.

Sjá einnig: Er Taylor Swift búin að fara í brjóstastækkun?

Taylor-and-Tom

SHARE