Tónleikar í Hörpu – Alþjóðlegur dagur flóttabarnsins er í dag

Stuðningur við réttindi barna á heimsvísu á alþjóðlegum degi flóttabarnsins

Börn á flótta eru sérstaklega berskjalda gegn sjúkdómum, ofbeldi og misnotkun

Alþjóðlegur dagur flóttabarnsins er í dag

Miðasala á styrktartónleika fyrir neyðarhjálp UNICEF hefst í dag

 

Alþjóðlegur dagur flóttabarnsins er í dag. Í ár hafa ótal börn á heimsvísu neyðst til að yfirgefa heimili sín og samfélög vegna átaka eða náttúruhamfara. Börn á flótta eru sérstaklega berskjalda gegn sjúkdómum, ofbeldi og misnotkun.

Um þessar mundir beinir UNICEF á Íslandi sjónum sínum að stöðu barna í yngsta ríki heims, Suður-Súdan. Meira en hálf milljón barna hafa lagt á flótta eftir að blóðug átök brutust út í landinu í lok síðasta árs. Mörg þessara barna hafa misst eða orðið viðskila við fjölskyldur sínar og eru því ein á ferð. UNICEF hefur komið á fót miðstöðvum þar sem börn sem eru án fylgdar fullorðinna eru skráð, að þeim hlúð og þau sameinuð fjölskyldum sínum þar sem því verður við komið.

„Af ástæðum sem þau eiga enga sök á, hafa börn í Suður-Súdan nú þegar upplifað meiri hörmungar en nokkurt mannsbarn ætti að ganga í gegnum,“ segir Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. Börnin í landinu berjast nú einnig við sjúkdóma og fæðuóöryggi sem mun leiða til gríðarlegrar hungursneyðar á næstu misserum ef ekkert verður að gert.

„Við verðum að koma þessum börnum til hjálpar tafarlaust. Þau eru algjörlega berskjölduð og nú skiptir hver einasta mínúta máli.“
Yfir hálf milljón barna í Suður-Súdan hafa flúið heimili sín síðan átökin brutust út í lok síðasta árs.[2]
Miðasala hefst í dag

Neyðarsöfnun UNICEF á Íslandi fyrir börn í Suður-Súdan hefur gengið vel og landsmenn fylkja sér á bak við þá hugsjón að öll börn eigi sama rétt til lífs og þroska, hvar svo sem í heiminum þau kunna að búa. Stefán Ingi heldur til Suður-Súdan á morgun þar sem hann mun leggja hjálparstarfinu lið á vettvangi í sumar.

Miðasala á styrktartónleika fyrir neyðarhjálp UNICEF í Suður-Súdan hefst í dag. Tónleikarnir fara fram í Silfurbergi í Hörpu, fimmtudaginn 3. júlí. Fram koma hljómsveitirnar Hjaltalín og Kaleó ásamt Páli Óskari og Snorra Helgasyni. Miðaverð er 4.500 krónur og rennur óskipt til neyðarsöfnunarinnar. Það er lyfjafyrirtækið Alvogen sem á veg og vanda að skipulagningu tónleikanna en Alvogen hefur verið dyggur stuðningsaðili UNICEF á Íslandi frá árinu 2012. 

Fylgist með okkur á www.unicef.is og www.facebook.com/unicefisland

SHARE