Um 2000 tillögur um nýyrði í keppni Aha.is

Vefsíðan Aha.is hefur undanfarna viku staðið fyrir nýyrðasamkeppni, en starfsfólk Aha leitar að íslensku orði fyrir mat sem keyptur er á veitingahúsi til að fara með annað, en almennt er notast við enska orðið ,,take away” í dag.

Þátttakan fór fram úr björtustu vonum, en 1923 tillögur bárust, þar af tæplega 1100 mismunandi orð.  Til stóð að tilkynna sigurvegara í samkeppninni á sunnudag 5. október, en þar sem margar tillögurnar þóttu mjög góðar og vel úthugsaðar er ljóst að dómnefndar bíður starf sem er mun viðameira en svo að það verði unnið á svo skömmum tíma.

Í stað þess að einráð dómnefnd velji nafn, hefur nefndin undanfarna daga valið bestu orðin úr tillögunum og  ætlar að efna til vefkosningar á því hvað almenningi finnst besta orðið.  Kosningin hefst á mánudag 6. október og verður inni á vef Aha.is og stendur yfir til fimmtudagsins 9. október, en síðdegis næsta dag, föstudaginn 10. október verður sigurvegari og nýtt orð kynnt.

Aha.is fór í loftið í apríl 2011 og hefur vaxið jafnt og þétt síðan. Í dag er síðan með 60.000 viðskiptavini og býður upp á ný tilboð daglega, fleiri þúsund vörur í netverslun sinni og nú þann möguleika að panta mat á netinu.

SHARE