Ungfrú alheimur 2023- Sú elsta sem hefur hlotið titilinn

Það varð töluvert fjaðrafok þegar ákveðið var að mæður og eiginkonur mættu taka þátt í Ungfrú alheimur frá og með árinu 2023. Þessi nýja regla varð til þess að sú kona sem krýnd var Ungfrú alheimur, R’Bonney Gabriel, er elsti sigurvegari allra tíma í þessari keppni. Hún er aðeins 28 ára gömul.

Árið 2020 var Andrea Meza, frá Mexíkó, sú elsta sem krýnd hafði verið þegar hún varð Ungfrú alheimur 26 ára. En nú hefur R’Bonney slegið þetta met eins og fyrr segir, með sín 28 ár og 300 daga.

R’Bonney er líka fyrsta konan sem er Amerísk/Filippeysk sem fær þennan titil. Hún er fatahönnuður og er mjög skapandi en hún hannaði sinn eigin kjól fyrir keppnina.

Hér má sjá hana hanna fötin sem hún var í í keppninni. Ótrúlega klár stelpa.

SHARE