Upplýsingar um húðkrabba

Fáðu upplýsingar um húðkrabba

Húðkrabbanmein er ein algengasta tegund krabbameina. Það er gott að vita að læknavísindin ráða tiltölulega vel við húðkrabbamein ef það er greint á fyrstu stigum. Fylgstu vel með húð þinni og hér eru nokkur atriði sem vert er að huga að.  Hér eru nokkur ráð frá húðsjúkdómalækni.

 

Það er mikilvægt að skoða alla húðin vel og vandlega a.m.k. einu sinni á ári. Húðæxlin geta leynst hvar sem er, á útlimum, undir tungunni, milli tánna-sem sagt hvar sem er.Þegar húðblettir eru skoðaðir er rétt að athuga sérstaklega eftirfandi:

 

Spegilmynd

Ef bletturinn væri skorinn í tvenn eftir miðju- eru báðir hlutarnir eins? Það viltu sjá!

Brúnirnar

Ef blettur er mjög óreglulegur í laginu og hrufóttur er ástæða til að láta athuga hann

Litur

Blettur á að vera með einum lit. Það lofar ekki góðu ef margir litatónar eru á honum. Ef hann er í brúnum, bláum, rauðum, hvítum og svörtum litum skaltu láta skoða hann.

Stærðin

Þú átt ekki að bíða eftir að blettur sem þér finnst grunsamlegur stækki.  Oft eru húðæxlin orðin um ½ cm. þegar þau greinast en stundum eru þau líka minni.

Breytingar 

Ef blettur breytist, hvort sem er að stærð, lögun eða lit skaltu strax hafa sambandi við lækni.

Annað sem rétt er að athuga.

Bleikar bólur. fólk ætti að láta athuga bólur sem það hefur fengið og  vilja ekki hverfa – eru búnar að vera fjórar vikur eða lengur-. Fólk heldur að þetta sé bara bóla en það getur verið annað og alvarlegra“

Greinileg sár.  – Húðkrabbi getur litið út eins og sár sem vill ekki gróa. Þannig getur sár í munnholi sem ekki vill gróa verið vísbending um krabbamein í munni. Húðkrabbi getur komið hvar sem er og skiptir miklu að láta skoða sár sem ekki vilja gróa. Þetta á við um alla en einkum þá sem reykja, nota munntóbak eða drekka mikið áfengi.

Kláði – Fylgstu veil með blettum, vörtum eða freknum sem kláði er í eða  eru aum viðkomu.

 

 

 

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here