Varirnar á honum eru byrjaðar að leka

Hinn 23 ára gamli Jordan James Parke komst í fjölmiðla seint á síðasta ári fyrir útlit sitt. Jordan hefur eytt yfir 19 milljónum íslenskra króna í lýtaaðgerðir til að líta út eins og Kim Kardashian.

Nú er það orðið þannig að James er orðinn háður því að láta sprauta bótoxi í varirnar. Hann hefur þó einnig látið setja fyllingu í kinnarnar á sér, ennið og í kringum nefið á sér.

Í dag eru bótoxið byrjað að leka út úr vörunum á Jordan og ákvað því þessi ungi drengur að sækja um að komas í raunveruleikaþáttinn Botched. Í þættinum taka tveir þekktir lýtalæknar að sér slæm tilfelli af lýtalækningum sem hafa misheppnast í von um að laga þau.

Sjá einnig: Karlmaður hefur eytt milljónum til þess að líkjast Kim Kardashian

Sjá einnig: Þúsundir fylgjast með lýtaaðgerðum í beinni gegnum Snapchat

 

SHARE