Vefjargigtarþreyta er engin venjuleg þreyta

Á vefsíðunni vefjagigt.is sem er fræðsluvefur um allt sem tengist vefjagigt og mikilvægt að bæði vefjagigtarsjúklingar og aðstandendur viti af þessari vönduðu síðu.

Ég sjálf er með vefjagigt og get sagt það án þess að hika að þessi síða hefur hjálpað mér og mínum.

Núna í dag eftir mikla keyrslu er ég að eiga vefjagigtarþreytudag og fyrir ykkur sem ekki vitið hvernig það er þá er það engin venjuleg þreyta.

Eftirfarandi fræðslugrein er fengin af síðunni og nafn höfundar kemur fram neðst.

Þreyta

Þreyta er ástand sem allir þekkja og er eðlileg viðbrögð líkamans við álagi og skertri hvíld. Þegar þreytan hverfur ekki þrátt fyrir góðan nætursvefn, hvíld og slökun þá verður hún smám saman að sjúklegu ástandi, nefnt síþreyta. Allt að 85% vefjagigtar- sjúklinga eru haldnir sjúklegri þreytu af líkamlegum og/eða andlegum toga (21).

Helstu einkenni síþreytu eru:
• Að vakna þreyttur og óendurnærður
• Að hafa litla sem enga orku yfir daginn
• Að verða yfirkominn af þreytu eftir álag og geta ekki hvílt þreytuna úr sér
• Að verða yfirþyrmandi þreyttur allt í einu 
• Að vera illa upplagður og hafa minnkaðan áhuga á að taka þátt er einnig ein afleiðing síþreytu



Síþreyta er breytileg milli einstaklinga og í sumum tilfellum er hún svo mikil að hún rænir fólk allri orku til daglegra athafna. Sá hópur fólks er ekki fær um að vinna úti, stunda félagslíf, íþróttir o.s.frv. og getur orðið mjög félagslega einangraður. Flestir vefjagigtar- sjúklingar eru þó haldnir mildari einkennum þreytu og geta lært að lifa lífinu með tilliti til þeirrar orku sem þeir hafa.
Orsakir síþreytu geta verið margar og þær algengustu eru eftirfarandi:
• Svefntruflanir
• Langvinnir verkir
• Þunglyndi, kvíði
• Streita
• Lélegt líkamsástand
• Minnkuð starfsemi í skjaldkirtli
• Ýmsir langvinnir sjúkdómar s.s. astmi, ofnæmi, liðagigt 
• Blóðleysi, járnskortur
• Alkóhólismi, lyfja- og eiturlyfjafíkn

Höfundur greinar: Sigrún Baldursdóttir

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here