
Starfsmönnum Kattholts beið ekki fögur sjón í morgunsárið. Fyrir utan bygginguna voru sex, tveggja mánaða kettlingar yfirgefnir í kassa og voru kaldir og dauðhræddir.
Á Facebook síðu Kattholts var þetta ritað: Við biðjum fólk að taka ábyrgð á dýrunum sínum og taka læður úr sambandi. Við leitum núna að góðum heimilum fyrir kettlinganna. Opið kl. 14-16 í dag.