10 fyrstu einkenni Alzheimer

Alzheimer er ein algengasta tegun heilabilunar sem hefur áhrif á daglegt líf, veldur minnisleysi og hefur vitrænar breytingar. Það eru þrjú stig sjúkdómsins: væg, meðal og alvarleg.

Það er ekki enn vitað hvað veldur Alzheimer en það er þó vitað að það eru nokkrir þættir sem geta aukið líkurnar á að fá Alzheimer. Þar á meðal eru þættir eins og erfðir, hár aldur, höfuðhögg og hjarta- og æðasjúkdómar. Það er engin lækning fundin ennþá.

Það eru nokkur atriði sem koma fram snemma sem fólk ætti að vera vakandi fyrir.

  • Minnistap sem hefur áhrif á daglegt líf
  • Erfiðleikar með að skipuleggja sig og leysa vandamál
  • Erfiðleikar með að klára dagleg störf á heimilinu
  • Rugl, ráðaleysi og týnist á kunnuglegum stöðum
  • Erfiðleikar með hreyfingar og að sjá um sig
  • Breytingar á sjón
  • Ofskynjanir (sjá eða heyra hluti sem eru ekki raunverulegir) og ranghugmyndir (trúa hlutum sem eru óraunverulegir)
  • Erfiðleikar með tal og málfar
  • Félagsleg einangrun og skortur á hvatningu
  • Skert efnaskipti eins og skjaldkirtilsvandamál

Heimildir: MedicalDaily

SHARE