13 ráð til að sofa betur

Það eru nokkrir hlutir sem flest fólk gerir áður en það fer að sofa. Bursta tennur, pissa, stilla vekjarann og fleira. Margir eiga erfitt með að koma sér í ró á kvöldin en hér eru nokkur dæmi um athafnir sem þú getur prófað til að fá betri nætursvefn. Listinn er frá  The Daily Meal.

 

Þetta hljómar ekki eins og eitthvað sem maður nennir að gera fyrir svefninn en það gæti komið þér á óvart hvað getur gerst ef þú gerir þetta. Ef þú dregur úr óreiðunni í kringum þig, dregur þú úr óreiðunni í huganum þínum. Taktu nokkrar mínútur í að laga aðeins til, laga bækur í bókahillu, ganga frá fötunum og raða á hillur.

Heilinn er þannig gerður að hann vill vera vakandi þegar það er bjart en sofandi þegar það er dimmt. Þegar það er bjart í herberginu hamlar líkaminn framleiðslu svefnhormóns. Því dimmara sem er, því meira svefnhormón framleiðir þú. Það er fínt að hafa vekjaraklukku sem líkir eftir því þegar sólin er að rísa, en eins er gott að hafa dempaða birtu þegar þú vilt koma þér í ró.

Teiknaðu eða skrifaðu

Það, að teikna, skrifa eða gera eitthvað annað skapandi, getur verið góð leið til að slaka á eftir stressandi dag. Það getur líka haldið höndum þínum uppteknum á meðan heilinn slakar á. Þá dregur þú úr eirðarleysi og hægir á huganum.

Drekktu heitan drykk

Heit mjólk eða möndlumjólk er góð til að festa svefn. Í þeim er mikið magnesíum en þeir sem eru ekki með nóg af magnesíum í líkamanum eiga það til að glíma við svefnleysi.

Sumu fólki finnst gott ljúka deginum með því að fara yfir atburði dagsins. Það getur virkað vel að skrifa á hverjum degi, þrjá hluti sem þú ert þakklát/ur fyrir. Sumum finnst gott að skrifa bara eitthvað sem hefur gerst yfir daginn eða bara það fyrsta sem kemur upp í hugann. Hvað sem þú skrifar þá er þetta ákveðin hreinsun á huganum.

Hugleiddu

Það hefur verið vísindalega sannað að hugleiðsla eða núvitundaræfingar hjálpa fólki að sofna. Hvort tveggja dregur úr stressi, bætir einbeitingu og bætir hjartaheilsu. Þú þarft ekki að hugleiða í marga klukkutíma til að hagnast á þessu heldur er nóg að hugleiða í nokkrar mínútur.

Spreyjaðu lavender ilmkjarnaolíu

Ilmkjarnaolíur hafa verið notaðar í lækningarskyni í þúsundir ára. Talið er að ákveðnir ilmir hafi veruleg áhrif á mannslíkamann. Lavender er notað víða í dag og talið er að lyktin hjálpi fólki að sofa betur.

Teygðu á

Lækkaðu hitann

Samkvæmt National Sleep Foundation er best að sofa í 18° hita. Settu hitann niður svona klukkutíma fyrir svefninn og hafðu herbergið frekar svalt þegar þú skríður undir sæng.

SHARE