Hríðir og fæðing eru oft í mikilli móðu hjá mörgum. Því fylgir svo ólýsanleg gleði vegna fæðingar barns. Sumar konur eru svo forsjálar að þær panta ljósmyndara til að vera á staðnum sem myndar hvert andartak í þessu fallega ferli.
The stir fékk nokkra fæðingaljósmyndara til að deila myndum sem eru alveg óendanlega fallegar og segja frá því hvað var að gerast á því augnabliki sem myndin var tekin.
„Þessi fæðing gekk auðveldlega fyrir sig. Þrír rembingar og litla stúlkan kom í heiminn. Fjórða barn og fyrsta stúlkubarnið“ – Aubrie Moates
„Þessi mamma hafði planað heimafæðingu í baðinu. Hún fór örsnöggt úr baðinu og á því augnabliki fann hún að barnið var að koma. Hún kraup og rembdist tvisvar og þá var barnið bara komið.“ – Jaydene Freund
„Þessi litli gaur var tekinn með keisaraskurði. Þetta var ein tilfinningalegasta, friðsælasta og fallegasta fæðing sem ég hef verið viðstödd“ – Ina Boteva
„Fyrsti andadráttur barns er töfrandi augnablik. Í 9 af hverjum 10 skiptum mun þessi fyrsti andadráttur og grátur, græta mömmuna líka. Í 6 af hverjum 10 skiptum mun pabbi gráta líka“ – Heather Alvarado
„Þessi mynd var tekin í heimafæðingu og þetta barn var seinni tvíburinn að koma í heiminn. Hann kom í heiminn í líknarbelgnum og ég hafði 5 sekúndur til að ná þessari mynd“ – Leilani Rogers
„Gullfalleg heimafæðing. Foreldrarnir vissu ekki kynið og það var ekki fyrr en ljósmóðirin dró barnið upp og á bringu móðurinnar sem þau komust að því að þetta væri stúlka.“ – Paige
„Þessi mamma fór ú því að vera með 3 í útvíkkun í það að vera með 10 í útvíkkun. Þegar hún fann barnið vera að koma notaði hún allan sinn styrk til að teygja sig niður og ná í barnið sjálf.“ – Jaydene Freund
„Pabbinn tekur á móti barninu sínu. Hann og konan hans hittust fyrst í jarðarför bróður konunnar. Maðurinn var besti vinur hans. Mjög falleg saga“ – Neely Ker-Fox
„Á þessari mynd er ljósmóðirin að losa naflastrenginn frá hálsi barnsins en hann var þrívafinn um hálsinn.“ – Leilani Rogers
„Hún hafði planað að eiga í pottinum heima en fór aðeins upp úr og þá fór allt af stað og hún rétt náði að komast í pottinn aftur. Dóttir hennar kom í heiminn og sólin kom upp.“ – Laura Eckert
„Þessi fæðing var mjög sérstök. Mömmurnar stóðu sig vel en á endanum var barnið tekið með keisaraskurður eftir tveggja daga hríðir“ – Natasha Hance
„Mamman sér barnið í fyrsta sinn, barnið dregur fyrsta andadráttinn og pabbi lyftir því upp“ – Jessica Anders
„Er ekki æðislegt að geta fryst andartakið þegar barn tekur sinn fyrsta andadrátt“ – Ashley Wright
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.