20 hlutir sem þú átt ALDREI að segja á fyrsta stefnumóti

Það eru ýmsar óskrifaðar reglur í þessu lífi. Flest erum við nokkuð meðvituð um þær en sumir sko – nei, þeir ætla bara ekkert að ná þeim. Samkvæmt The Huffington Post eru ýmsir hlutir sem aldrei skal láta út úr sér á stefnumóti – þetta vita margir og passa sig á að skarta aðeins sparihliðinni svona fyrst um sinn. En aðrir eru ekki alveg eins meðvitaðir um hvað má og hvað má ekki þegar kemur að stefnumótum.

Lítum á málið:

1. ,,Subway er uppáhalds veitingastaðurinn minn. Og sko McDonalds þegar ég er í útlöndum. ”

2.  ,, Jú, ég á mína eigin íbúð. Það eru tvö svefnherbergi í henni – mamma mín býr að vísu í öðru þeirra, en það truflar hana ekki neitt þó að þú komir heim með mér.”

3. ,,Hvað ertu með í tekjur?”

4. ,,Vá, þú ert með rosalega góða matarlyst.”

5. ,,Ég safna uppstoppuðum dýrum.”

ezgif-com-gif-maker-1

6. ,,Þegar ég var í fangelsi…”

7. ,,Ég gúgglaði þig í gær.”

8. ,,Hey, tökum selfie!

9. ,,Þú minnir mig svo mikið á pabba minn – það er eiginlega skuggalegt.”

10. ,,Ég held ég gæti elskað þig.”

11. ,,Þú ert of sæt/ur til þess að vera einhleyp/ur.”

12. ,,Hvað hefur þú sofið hjá mörgum af Tinder?”

output_TV97CI

13. ,,Ég vill ekki hljóma eins og karlremba en…”

14. ,,Ég er ekki að leita að langtíma sambandi.”

15. ,,Mín/minn fyrrverandi sagði alltaf…”

16. ,,Ferðu oft á stefnumót?”

17. ,,Börnin okkar yrðu örugglega alveg ótrúlega falleg.”

18. ,,Ég vil bara verða ástfangin/n – sem allra fyrst.”

19. ,,Ég þarf að skreppa á salernið – það gæti tekið smástund.”

20. ,,Ég elska börn. Eeeelska þau!”

Tengdar greinar:

Þóttist vera látin til að sleppa við stefnumót

Hvað ef allir væru 100% heiðarlegir á stefnumótasíðum?

Stelpur prófa stefnumótaráð Cosmo með hræðilegum árangri

SHARE