
Það hafa margir verið í sólinni í sumar og leyft henni að kyssa húðina. Þó það hafi verið mikil vitundarvakning í notkun á sólarvörnum seinustu ár, en það breytir ekki því að sólin hefur alltaf einhverskonar áhrif á húðina.
Ég kynntist nýlega húðvörunum frá LaugarSpa – Organic skincare. Þær eru, eins og nafnið gefur til kynna, lífrænar, sem er bara einn af kostum þeirra. Vörurnar eru lífrænar, hreinar til þess að fullkomna áhrif og hámarka vellíðan húðarinnar. Allar vörurnar eru unisex, sem þýðir að þær henta öllum kynum.
Vörurnar eru unnar að mestu úr lífrænu grænmeti, ávöxtum og jurtum og eru handunnar frá a til ö, sem þýðir að engar vélar komast í tæri við kremin. Laugar Spa línan er án allra kemískra aukaefna og ekki prófaðar á dýrum.
Nú þegar farið er að kólna eru eflaust margir farnir að finna fyrir að húðin er farin að þorna upp og missa sumarljómann. Þá er mjög mikilvægt að vera með góðar húðvörur og tileinka sér húðrútínu.
Hér eru nokkrar vörur frá Organic Skincare sem hjálpa þér að halda húðinni ljómandi og frísklegri.
Morgunrútínan
FACE C VITAMIN BOOSTER
Þessir dropar eru fullir af náttúrulegu C-vítamíni. Það eykur framleiðslu Collagen og dregur því úr öldrun húðar, vinnur á dökkum blettum, jafnar húðlitinn og dregur úr fínum línum.
FACE DAY & NIGHT
24 klst. krem sem gefur húðinni góða næringu og vellíðan. Kremið inniheldur mikið magn E-vítamíns sem talið er besta fyrirbyggjandi vítamínið gegn ótímabærri öldrun. Hentar öllum húðgerðum, psoriasis, exem og rósroða.
FACE EYE CREAM
Dásamlegt augnkrem sem dregur úr þrota og fínum línum. Hefur kælandi áhrif sem gefur augnsvæðinu ljóma og hentar öllum húðgerðum.
Kvöldrútínan
FACE GEL CLEANER
Mildur gelhreinsir sem hægt er að nota daglega sem hreinsar og frískar. Fjarlægir öll óhreinindi og farða af yfirborði húðar. Hentar öllum húðgerðum.
FACE GLOW VITAMIN SERUM
Jafnar húðlit og frískar, gefur húðinni vítamín, raka og hollar fitur. Má nota á allar húðgerðir. Glow vítamín serum-ið er stúfullt af ferskum vítamínum, A,C og E, Carrot Seed olíu og lífrænni avocado olíu en hún nærir, mýkir og róar húðina án þess að stífla svitaholurnar. Hún er góð fyrir exem og psoriasis og fitusýrurnar viðhalda teygjanleika húðarinnar á náttúrulegan hátt.
FACE DAY & NIGHT
24 klst. krem sem gefur húðinni góða næringu og vellíðan. Kremið inniheldur mikið magn E-vítamíns sem talið er besta fyrirbyggjandi vítamínið gegn ótímabærri öldrun. Hentar öllum húðgerðum, psoriasis, exem og rósroða.
Allar vörurnar eru til sölu í vefverslun Lauga Spa og á flestum stöðvum World Class. Sérstaklega er hægt að skoða vörurnar á snyrtistofunni í Laugum og í Kringlunni.

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














