„Ég vil ekki vera feit eins og þú“ sagði dóttirin við móður sína

Börn læra um jákvæða líkamsímynd hjá foreldrum sínum. Þessi móðir, Sharon, birti þessa færslu á Instagram þar sem hún segir að dóttir hennar hafi sagt við hana: „Ég vil ekki vera feit eins og þú“. Sharon svaraði dóttur sinni með því að segja: „Af hverju ekki elskan?“. Dóttirin svaraði henni og sagði: „Af því mig langar að geta hlaupið hratt og þú getur ekki hlaupið hratt mamma.“

Sharon brosti til dóttur sinnar og sagði: „Ástæðan fyrir því að ég get ekki hlaupið hratt er ekki af því ég er feit. Ég get ekki hlaupið hratt því ég hef ekki æft mig í því að hlaupa. Ég ætti að hlaupa meira til að æfa mig í því.“

Móðirin útskýrði fyrir dóttur sinni að grannt fólk gæti ekkert endilega hlaupið hratt og þá svaraði dóttirin: „Já það er rétt. Ég á granna vinkonu og hún getur ekki hlaupið hratt.“

Sharon segir svo að hún hafi klætt sig í íþróttaföt og hlaupið fjóra hringi í hverfinu og deildi myndbandinu um þetta á Instagram og myndbandið hefur fengið mikið áhorf. Í lok myndbandsins segir hún: „Ástæðan fyrir því að þú ert ekki að gera hluti er ekki af því þú ert feit/ur. Það er af því þú heldur að þú getir það ekki af því þú ert feit/ur.“

Hvað segið þið lesendur? Eruð þið sammála þessari móður?


Sjá einnig:

SHARE