
Jóel Sæmundsson kom í viðtal hjá mér í hlaðvarpið Fullorðins og var virkilega skemmtilegur viðmælandi. Hann sagði mér frá lífi sínu hingað til en hann ólst upp á Þórshöfn á Langanesi frá 1989 til 1999. Þar æfði hann körfubolta og átti líflega og skemmtilega æsku. Skólagangan gekk vel en hann segist hafa fallið í stærðfræði í samræmdu prófunum.
Jóel kom til Reykjavíkur eftir grunnskóla og fór að vinna á sprautuverkstæði og fór í framhaldsskóla í Kópavogi. Eftir eitt ár fór hann svo til New York á skólastyrk í körfubolta en svo kom hann heim og tilviljanir urðu til þess að hann fór í leiklistarnám í London.
„Það voru allir á dópi í leiklistarskólanum,“ sagði Jóel og bætti því við að þeir hafi verið tveir í árganginum sem voru ekki í dópi.
Jóel segir líka frá þeirri erfiðu reynslu að missa barnsmóður sína, á seinasta ári, úr krabbameini.

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














