Færð þú gæsahúð þegar þú hlustar á flotta tónlist? – Það á við 50-60% fólks

Það kannast margir við að hlusta á fallegt lag eða flottan söng og fá allt í einu gæsahúð af því tónlistin er svo flott. Þetta er hinsvegar ekki eitthvað sem allir upplifa, en talið er að 50-60% mannkyns fái gæsahúð vegna tónlistar. Þetta fyrirbæri kallast frisson eða eins og við myndum kalla þetta á okkar ylhýra máli: tónlistarhrollur.

Af hverju gerist þetta hjá sumum?

Það tengist meðal annars:

Sterkum tilfinningaviðbrögðum

  • Tónlist sem snertir fólk djúpt, vekur minningar eða tilfinningar.

Óvæntum tónlistarbreytingum

  • Þegar lag byggist upp og „springur út“.
  • Kór kemur inn, rödd hækkar eða dramatísk breyting verður á laginu

Heilastarfsemi

Rannsóknir sýna að fólk sem fær oft gæsahúð við tónlist getur verið með sterkari tengsl milli heilastöðva sem vinna með tilfinningar og hljóðupplifun.

Persónuleikaþættir

Fólk sem er opið fyrir list, ímyndun og djúpum tilfinningum virðist líklegra til að upplifa þetta.

Af hverju fá sumir ekki gæsahúð?

Það þýðir ekkert að þeim líki síður tónlist. Sumir njóta tónlistar á annan hátt – með gleði, slökun, danshvöt eða nostalgíu, án gæsahúðar.

Tónlist sem er líkleg til að valda gæsahúð:

  • Sterkir kórar
  • Klassísk tónlist með uppbyggingu
  • Tilfinningaríkar ballöður
  • Lifandi tónleikaupplifun

Í stuttu máli:

Nei, ekki allir fá gæsahúð, en þeir sem gera það upplifa oft mjög sterkt samband við tónlist.

Eitt að lokum, þessu tengt en samt ekki. Höfundur greinar er í hinum stórkostlega kór Vocal Project og er hann þekktur fyrir að láta fólk fá stöku gæsahúð. Ef þið viljið athuga hvort þið tilheyrið þessum 50-60% mannkyns sem fær „tónlistarhrollinn“ þá getið þið komið á tónleika hjá kórnum þann 21. maí.

Hlekkur til að skoða miða.

SHARE