
Ingibergur Sigurðsson hefur upplifað fleira en margir aðrir og er í dag búin að fá þann dóm að hann sé að deyja. Hann sagði mér það fljótlega þegar ég hitti hann og mér fannst viðhorf hans til lífsins og dauðans á allan hátt aðdáunarvert. Ég hitti hann á förnum vegi og ég bað hann eftir nokkrar mínútur að koma til mín í viðtal því ég fann það strax að þessi maður gæti kennt okkur öllum eitt og annað um lífið.
Ingibergur fæddist árið 1954 og foreldrar hans þóttu frekar „gamlir“ en þau voru um þrítugt. Hann segir að fljótlega hafi komið fram að pabbi hans var alkóhólisti sem átti það til að verða ofbeldishneigður. Ingibergur á minningar um það að hafa farið með móður sinni í Kvennaathvarfið til að bíða af sér „storminn“ á meðan faðir hans var á fylleríi. Pabbi hans barði úr mömmu hans tennur og mótaði hún gervitennur úr kertavaxi til að fela það að hún væri tannlaus.
Ingibergur var ungur þegar hann byrjaði að nota áfengi til að takast á við hversdaginn og fíkniefni voru fljótlega komin í líf hans líka. Hann segir frá því að hann hafi einu sinni verið sendur til Amsterdam til að smygla inn 1,5 kíló af hassi til Íslands.
Hann segir okkur líka frá því þegar hann fékk þá greiningu að hann væri með krabbamein og hann ætti bara stuttan tíma eftir ólifaðan. Jafnframt segir hann að hann hafi verið greindur með kvíðaröskun og segir hann að honum hafi þótt erfiðara að takast á við kvíðann en krabbameinið.
Ef þú vilt horfa/hlusta á allan þáttinn geturðu keypt áskrift af hlaðvarpinu inni á Fullordins.is en áskriftin kostar aðeins 1.090 kr á mánuði.

Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.














