Ingibjörg Birna missti báða foreldra sína sem unglingur

Ingibjörg Birna Ársælsdóttir er fædd og uppalin á Hliðsnesi á Álftanesi og man eftir að hafa verið sótt á leigubíl til að fara í skólann. Hún á 4 systkini og allt lék í lyndi í byrjun æskunnar og man eftir að hafa verið mikið með foreldrum sínum en mamma hennar var heimavinnandi. „Það var dásamlegt og góð minning en við og vinir okkar komum heim eftir skóla og þá var mamma búin að baka beyglur,“ segir Ingibjörg þegar við rifjum upp æskuna.

Það sem gerir sögu Ingibjargar sérstaka er að hún missti báða foreldra sína með studdu millibili, báða úr krabbameini.

Mamma Ingibjargar greindist með krabbamein í lífhimnunni þegar Ingibjörg var að fara að fermast. Hún greindist um áramótin 2005-2006 og var látin 9. september 2006. Faðir Ingibjargar lést 15. mánuðum seinna úr krabbameini.

Ingibjörg kom til mín í viðtal og sagði sögu sína um hvernig hún tókst á við að missa báða foreldra sína, þegar hún var á mjög viðkvæmum aldri. Hvað tók við og hvernig hún tókst á við ofsakvíðann sem fylgdi í kjölfarið og þann andlega toll sem reynsla hennar tók af henni. Hún hefur svo sannarlega farið vel með líf sitt og staðið uppi sem sigurvegari.

Hér má sjá brot úr þættinum en áskrift að hlaðvarpinu á 1.090 kr á mánuði inni á fullordins.is.

SHARE