Enn ein stúlkan sem vill vera eins og Barbie – Myndir

Nú er enn ein stúlkan komin í fjölmiðla erlendis vegna þess að hún lítur út eins og Barbie. Þessi stúlka heitir Lhouraii Li og eyðir 4 klukkustundum á dag í að gera útlit sitt „fullkomið“. article-2525716-1A2C6D3A00000578-458_638x450

Lhouraii er 21 árs gamall naglafræðingur og býr í Bradford, en hún notar sérstakar augnlinsur og gerviaugnhár til þess að gera augu sín eins og á dúkku.

article-2525716-1A2C6DE400000578-516_638x421

„Ég set linsurnar í augun svo þau virðist stærri og svo mála ég mig þannig að augun líta út fyrir að vera enn stærri og nota 14 pör af gerviaugnhárum,“ segir Lhouraii í viðtali við DailyMail. „Ég raka af mér augabrúnirnar og teikna þær hærra til þess að þetta líti ekki furðulega út þegar augun eru svona stór.“article-2525716-1A2C6DF700000578-529_638x422

Hún er það háð þessu útliti sínu að hún fer aldrei útúr húsi án þess að mála sig alveg. „Þetta er engin kvöð á mér. Mér finnst gaman að mála mig,“ segir Lhouraii.

article-2525716-1A2C6DEE00000578-685_308x546

Þessi ljóshærða stúlka hefur ekki alltaf verið svona útlítandi en á tímabili var hún „goth“, en þá er fólk klætt í svart og málað hvítt í framan og helst með svartan augnskugga og varalit.

article-2525716-1A2C6E3200000578-402_314x492

 

Lhouraii segist hafa fengið mun fleiri augngotur og gláp frá fólki þegar hún var „goth“ heldur en núna. 

article-2525716-1A2C6E1900000578-99_642x470

Stærsti aðdáandi Lhouraii er kærastinn hennar, hinn 24 ára gamli Nathan Kent en hann segist elska útlitið hennar.

 

SHARE