Að fara til kvensjúkdómalæknis

Þær konur sem hafa farið í kvenskoðun hjá kvensjúkdómalækni vita hvað það er. Það að fara í kvenskoðun í fyrsta skipti er sennilega eitt það erfiðasta sem nokkur kona gerir, enda er það svo að margar konur fara ekki fyrr en þær neyðast til þess að fara vegna þess að þær eru óléttar, með kynsjúkdóm eða það er eitthvað annað sem ýtir þeim af stað.

Það er þó æskilegt að konur sem eru komnar yfir tvítugt fari reglulega í skoðun og láti taka krabbameinssýni. Konur eru boðaðar á vegum leitarstöðvar krabbameinsfélagsins í skoðun á þriggja ára fresti frá 23 – 65 ára. Eftir 65 ára geta konur látið taka sýni reglulega ef þær kjósa það, en þær eru ekki boðaðar nema sérstök ástæða þyki til. Með reglulegri krabbameinsskoðun má finna frumubreytingar á algjöru frumstigi og koma í veg fyrir að þær verði að krabbameini. Konur geta farið á leitarstöðina og látið taka sýni þar, eða kvensjúkdómalæknir þeirra eða heimilislæknir tekur sýni og sendir til krabbameinsfélagsins. Jafnframt er krabbameinsfélagið með skoðunardaga á heilsugæslustöðvum úti á landi til að auðvelda konum að sækja þessa þjónustu.

Af hverju þarf að fara í skoðun?

Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því að konur þurfa að fara í skoðun, en það geta verið t.d. verkir í móðurlífi, grunur um kynsjúkdóm, til að fá getnaðarvörn, láta taka krabbameinssýni eða eitthvað annað. Það getur verið erfitt að fara í kvenskoðun en það er eitthvað sem við konur verðum að gera reglulega. Ungar stúlkur eiga oft mjög erfitt með að fara til kvensjúkdómalæknis en ef er til staðar grunur um kynsjúkdóm er nauðsynlegt fyrir þær að fara. Ef kynsjúkdómur er til staðar ómeðhöndlaður lengi getur það valdið ófrjósemi.  Það getur verið mikill styrkur í því fyrir þær að fá einhvern sem þær treysta með sér s.s. móður, hjúkrunarfræðing eða góða vinkonu.

Kvensjúkdómalæknar

Kvensjúkdómalæknar eru yfirhöfuð afar nærgætnir og gera sitt besta til þess að konunni líði sem best við þessar annars erfiðu aðstæður. Nú hefur fjöldi kvenna aukist í stétt kvensjúkdómalækna og er það vel. Nú getum við valið hvort við viljum heldur fara til konu eða karls í skoðun. Mörgum konum og ekki síst ungum stúlkum finnst oft auðveldara að fara til konu í skoðun en þess má einnig geta að margir heimilislæknar geta t.d. greint kynsjúkdóma og meðhöndlað þá.

Hvernig fer kvenskoðun fram?

Þegar kona kemur til læknisins í fyrsta sinn er gangur skoðunarinnar sá að konan byrjar á því að setjast við borð og ræða við lækninn, þá spyr hann út í ástæður komunnar, er eitthvað sérstakt að eða er konan að koma í reglubundið eftirlit. Í þessu viðtali er mikilvægt að læknirinn nái trausti konunnar, ef það tekst þá verður skoðunin sjálf auðveldari. Í þessu viðtali metur læknirinn það hvort ástæða sé til kvenskoðunar. Ef ástæða er til þess þarf konan að fara úr að neðan og leggjast upp á sérstakan bekk sem er með stoðir fyrir fæturna svo læknirinn komist vel að við skoðunina. Skoðunin sjálf tekur yfirleitt stuttan tíma, en hún felst meðal annars í því að farið er upp í leggöngin með legskoðunaráhaldi sem hægt er að glenna í sundur til að auðvelt megi vera að taka sýni. Sumir læknar eru einnig með svokallaðan leggangasónar á stofunni hjá sér og geta þeir þá jafnframt skoðað legu eggjastokka, þykkt slímhúðar í legi, fóstur ef það er til staðar eða annað sem ástæða þykir til að skoða nánar. Að þessu loknu getur konan farið niður af bekknum klætt sig og síðan er nokkurs konar framhaldsviðtal þar sem læknirinn fer yfir það sem skoðun hans leiddi í ljós og fer yfir framhaldið.

Það er misjafnt milli kvenna hvernig þær upplifa þessar skoðanir, en mörgum finnst þetta vera eitt það erfiðasta sem þær gera enda er það svo að ef við hittum á kvensjúkdómalækni sem okkur líður vel með að fara til þá förum við helst ekkert annað.

doktor.is logo

Tengdar greinar:

Að viðhalda góðu ástarsambandi og góðu kynlífi

Álfabikarinn – gagnlegar upplýsingar

Kvenskoðun er nauðsyn

SHARE