Adele: Má ekki tvíta sjálf því hún var alltaf drukkin á Twitter

Nýja smáskífa Adele, Hello; hefur tröllriðið öllu seinustu vikur. Það má með sanni segja að Adele hafi snúið aftur í tónlistarbransann með trompi. Adele var í viðtali á BBC hjá Graham Norton á dögunum þar sem hún viðurkennir að hún setji ekki sjálf færslur inn á Twitter.

Einn áhorfandi spurði Adele hvort eitthvað væri til í þeim sögusögnum að henni hafi verið meinaður aðgangur að hennar eigin Twitter-aðgangi.

Adele svaraði: „Það er satt, já hahahaha. Ég er ekki mikil drykkjumanneskja lengur en þegar Twitter kom fyrst var ég oft að setja færslur inn á Twitter þegar ég var drukkin og það fór næstum því illa nokkrum sinnum. Umboðsmaður minn ákvað þá að ég þyrfti að láta tvo aðila samþykkja tvítin mín áður en þau færu inn á netið. Þetta eru samt allt færslur frá mér og engum öðrum. Þær eru bara settar inn fyrir mig.“

Adele er með 24 milljónir fylgjenda á Twitter svo það er eins gott að vanda sig. Hún tók nýja lagið sitt í fyrsta sinn í sjónvarpi í þættinum og má sjá brot af því hér. Stórkostlegt auðvitað eins og hún sjálf!

 

 

SHARE