Afmælisbörn dagsins 11. nóvember.

Leonardo-Dicaprio-leonardo-dicaprio-19374229-900-902

Leonardo DiCaprio er 39 ára. Hann hefur verið tilnefndur til þriggja Óskarsverðlauna og níu Golden Globe verðlauna og fékk þau árið 2004 fyrir hlutverk sitt í The Aviator. Meðal mynda Leo má nefna Titanic, The Departed, Romeo+Juliet, Gangs of New York, Inception og Django unchained.  Á meðal hans fyrstu er What´s eating Gilbert Grape þar sem að Leo sýnir stórleik sem yngri bróðir Johnny Depp.[youtube width=”600″ height=”325″ video_id=”tHEw7vxjLbE”]

112410_demi_moore_beauty_544

Demi Moore er 51 árs. Meðal fyrstu og bestu mynda Demi eru Ghost, en hún fékk Golden globe fyrir hlutverk sitt í henni og St. Elmos fire. Hún hefur einnig leikið meðal annars í Striptease, A few good men og The Juror. Demi olli miklum usla árið 1991 þegar hún birtist nakin á forsíðu Vanity fair gengin sjö mánuði á leið.Demi er þrígift: söngvaranum Freddy Moore og leikurunum Bruce Willis en þau eiga þrjár dætur saman og Ashton Kutcher.

calistaflock

Calista Flockhart er 49 ára, en hún þekktust er fyrir hlutverk sitt sem Ally McBeal í samnefndum þáttum. Hún lék einnig í þáttunum Brothers & sisters á móti Sally Field. Calista giftist Harrison Ford árið 2010.

stanleytuc

Stanley Tucci er 53 ára. Þekktasta hlutverk hans til þessa er í Hunger games, en hann hefur einnig meðal annars leikið í The Lovely Bones (tilnefndur til Golden globe verðlauna), Lucky number slevin og Shall we dance.
[youtube width=”600″ height=”325″ video_id=”NUXt-stAcRw”]

SHARE