Agnes Ósk heldur kvennanámskeiðið Fókus & friður hjá Dale Carnegie

Agnes Ósk Sigmundardóttir er alin upp í Breiðholti og segist hafa átt mjög venjulega æsku og hún hafi verið meðalnemandi í grunnskóla. Hún fór í Kvennaskólann og segir að hún hafi algjörlega fallið fyrir þessum litla og góða skóla. Hún kynntist manni sínum þegar hún var 18 ára og þau eru enn saman í dag og eiga saman þrjá drengi.

Agnes kláraði að mennta sig áður en hún hóf að eignast börn. Hún skráði sig í sálfræði og ætlaði að verða sálfræðingur en það breyttist þegar hún var komin af stað í námið. Hún tók fjölmiðlafræði og tók svo mastersgráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði.

Agnes var heimavinnandi í nokkur ár og naut þess vel og hóf svo að vinna á leiksskóla drengjanna sinna í 1 og hálft ár. Hún fann þó að þetta starf var ekki það sem hún hafði hugsað sér og skráði sig á námskeið hjá Dale Carnegie. Á sama tíma var auglýst eftir manneskju í markaðsmálum hjá Dale Carnegie og sótti Agnes um og fékk starfið um svipað leyti og hún fór á námskeiðið.

Þann 17. janúar næstkomandi verður Agnes með námskeið sem heitir Fókus og friður 2026. Þar verður lögð áhersla á slökun, að stilla fókusinn og skapa ár með tilgangi. Námskeiðið fer fram með vinnustofu frá 10-15 og er frábær fyrir þá sem vilja slaka, stilla fókusinn á markmiðasetningu fyrir komandi ár og skoða mikilvægustu gildin. Smellið hér til að sjá meira um námskeiðið.

Hér má svo sjá viðtalið við Agnesi í fullri lengd.

SHARE