Allt öðruvísi sýning – „Íslenskir áhorfendur eru frábærir“

Danshópurinn Flying Steps sýndi mikil tilþrif á frumsýningu Red Bull Flying Bach í Eldborg, Hörpu á föstudagskvöld. Að sýningu lokinni var dynjandi lófaklapp frá áhorfendum á öllum aldri, allt frá 4 ára til 80 ára og áhorfendur voru af ýmsum toga, allt frá breikdönsurum til balletdansara og áhugamanna um J.S.Bach.

EA_130614_Flying_Bach_0001

Red Bull Flying Bach kom klassíska heiminum í Hörpu sannarlega á óvart með því að blanda saman breikdansi við ballet og tónverk eftir Bach.EA_130614_Flying_Bach_0003 EA_130614_Flying_Bach_0010

„Íslenskir áhorfendur eru frábærir“, segir Benny Kimoto; dansari í danshópnum Flying Steps frá Berlín. – „Við vissum að þetta væri góð sýning þegar allir áhorfendur fóru að klappa og fagna strax og við snérum okkur á höfðinu fyrst. Það var mikið klappað á meðan sýningu stóð svo að við fórum af sviðinu með frábæra tilfinningu í maganum.“

 

Flying Steps eru fjórfaldir heimsmeistarar í breikdansi og með samblandi af heljarstökkvum, smellum (“popping and locking”), breikdansi og hringsnúningum á hvolfi myndgera þeir Vel tempraða hljómborðið (“Das Wohltemperierte Klavier”) eftir Johann EA_130614_Flying_Bach_0009 EA_130614_Flying_Bach_0013Sebastian Bach. Bilið þurrkast út á milli klassískrar tónlistar og menningu unga fólksins sem gerir sýninguna áhugaverða fyrir alla fjölskylduna.

„Geggjuð sýning!!! Eins og sumt væri tölvugert“, segir Auðunn Blöndal fjölmiðlamaður.

„Þessi uppsetning var algjör snilld. Það var frábært að sjá svona gjörólíka heima blandaða saman í eitt verk. Gamli tíminn og nýi tíminn að mætast“, segir Berglind Ólafsdóttir fyrirsæta sem er nýflutt heim frá Hollywood.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here