„Alltaf fjör hér á bæ“ – Gyðja Collection opnar sína fyrstu verslun

Sigrún með Heiðrúnu hjá Dimmblá og móður Heiðrúnar

Á dögunum fagnaði Gyðja Collection opnun fyrstu verslunar sinnar í sameiningu með NYX Cosmetics þar sem báðar verslanirnar eru staðsettar að Bæjarlind 14-16.

Það var virkilega góð stemmning í loftinu á opnuninni sem heppnaðist vel. Það var líka alveg yndislegt veður, fyrsti alvöru sumardagurinn,“ segir Sigrún Lilja stofnandi og hönnuður Gyðju en hún klæddist glæsilegum kjól frá Andreu og var með lifandi blómakrans úr Garðheimum um kvöldið og bætir við að hún sé ótrúlega ánægð með nýju húsakynni Gyðju og bætir við „Við gerðum þetta algjörlega eftir okkar höfði. Það má segja að þetta sé bjart og fallegt listamannsumhverfi með skrifstofu og verslun. Mig langaði að hér myndi umvefja okkur sem hér vinnum góð og falleg orka og því lét ég setja innblástur í skilaboðum víða á veggina og speglana Það er líka alveg yndislegt að hafa svona góða granna, Sollu og stelpurnar í NYX. Það má því segja að það sé alltaf fjör hér á bæ,“ segir Sigrún Lilja.

Meðfylgjandi myndir tók Heida HB af gestum veislunnar sem skemmtu sér frameftir kvöldi, nýttu sér einstök tilboð og gæddu sér á veitingum frá Kalda, Voga og Nýja kökuhúsinu.

SHARE