Skrifar ljóð fyrir alvarlega veika móður- Söfnun hafin

Söfnun stendur nú yfir á Karolina Fund, til styrktar Ölmu Geirdal en hún glímir nú við alvarlegt krabbamein. Alma á 3 börn og tvö stjúpbörn svo það er nóg að gera hjá henni á sama tíma og hún tekst á við veikindin.

Sigríður Karlsdóttir, eða Sigga Karls eins og hún er oftast kölluð, skrifar ljóðin og hóf söfnunina á netinu.

„Áætlað er að gefa út 250 eintök af ljóðabókinni „Á dauða mínum átti ég von“. Verkefnið gengur út á að safna 250.000 krónum eða 1800 Evrum en það er sú upphæð sem þarf til að láta prenta út bókina.

Öll eintökin fara í sölu, bæði í bókabúðum og hjá mér sjálfri. ALLUR ágóði af sölu bókarinnar rennur til Ölmu og fjölskyldu,“ segir Sigga á síðunni á Karolina Fund.

„Alma glímir við krabbamein á fjórða stigi og skrifar hún um það ferli á Facebook Hún er einlæg, falleg og ótrúlega heiðarleg í skrifum sínum sem fær mörg þúsund manns daglega, til að hugsa á annan hátt, 

Mig langaði til að hjálpa henni fjárhagslega en fann ekki aðra leið en að gefa út ljóðabókina til styrktar henni,“ segir einnig á síðunni.

Við hjá Hún.is viljum hvetja alla þá sem geta að styðja Ölmu með framlagi til hennar.

Þið getið fylgst með skrifum Ölmu undir Alman vs cancer á facebook. 

SHARE