Amerískar pönnukökur – Uppskrift

Amerískar pönnukökur

1 bolli hveiti
1½ tsk lyftiduft
¼ tsk salt
1 bolli mjólk
1 egg
1 msk brætt smjör
1 tsk vanillusykur (má sleppa)

Hrærið saman hveiti, lyftiduft og salt í skál. Bætið út í mjólk, eggi og bráðna smjörinu og hrærið vel saman. Ekki hræra of mikið því það mega alveg vera smá kekkir. Pannan á að vera hituð á miðlungs hita og setjið smá smjör þegar pannan verður of þurr. Hellið hálfri ausu á pönnuna og steikið þar til pönnukakan er gullinbrún á báðum hliðum.

SHARE