Angelina Jolie vildi Colin Farrell en fékk Brad Pitt!

Á meðan orðrómur er um að Angelina Jolie og Brad Pitt hafi gengið í hjónaband um hátíðarnar þá er annar enn háværari orðrómur í gangi varðandi Angelina. Hún á semsagt að hafa verið yfir sig hrifin af Colin Farrell en hann vildi hana ekki svo hún sætti sig við Brad Pitt.

Angelina og Colin voru að leika saman í myndinni Alexander og fóru þá að hittast eitthvað og Angelina varð ofsalega hrifin af Colin, sendi honum meira að segja nokkuð svæsin hljóðskilaboð og myndbönd. Colin var ekki alveg að sjá sig fyrir sér með henni í sambandi og hætti að hitta hana meðan þau voru að kynna myndina sína.

Eftir þetta fór svo Angelina að leika með Brad Pitt í Mr & Mrs Smith og við þekkjum restina af sögunni.

SHARE

LEAVE A REPLY

Please enter your comment!
Please enter your name here