Aníta Ósk – „Var ofsótt og beitt einelti af lögreglunni“

Aníta fæddist 14. nóvember 2001, á afmælisdegi ömmu sinnar. Hún var alltaf rosalega rólegt og gott barn, leikskólaganga gekk vel síðan fór hún í grunnskóla og grunnskólagangan gekk mjög vel líka. Það var aldrei neitt vesen alltaf svo ljúf og góð og róleg og hún var yndislegur unglingur bara „ekkert að frétta“. Hún byrjaði að vinna í Bónus 13 ára fór síðan að vinna á veitingastað 15 eða 16 ára fór síðan að vinna á Hrafnistu og 2 heimahjúkrunum cirka 140 prósent vinna í rúm fjögur ár fram að slysi.

Hún keypti sína fyrstu íbúð 19 ára því hún var alltaf svo dugleg að safna pening því hún vann svo mikið Þegar hún fékk bílpróf byrjaði martröðin. Hún keypti sér nýjan bíl, Hyundai i10, alsæl með bílprófið og eiga bíl, gaman að geta farið að rúnta en gleðin stóð stutt við.

Stoppuð endalaust af lögreglunni

Lögreglan byrjaði að stoppa hana endalaust, nánast í hvert sinn sem hún fór út, fyrir einhverja smámuni eins og stefnuljós, ljósabúnað, vera kannski á 37 km hraða á 30 götu, keyra of nálægt lögreglubíl og bara endalaus eftirlit, alltaf verið að stoppa hana. Hún skipti Hyundai í Póló og þá fékk hún margar sektir fyrir ljósabúnað þar sem það voru neðri ljós sem voru hluti af dagljósabúnaði og ekki hægt að slökkva þeir voru harðir á því að þetta væru þokuljós. Við fórum í umboðið og þeir sögðu eð ekki væri hægt að slökkva. Við fórum uppá stöð og talaði við konu sem var yfirlögregluþjónn bað hana sýna mér hvernig væri hægt að slökkva. Hún reif kjaft fór inn og skellti hurðinni á okkur.

Síðan gerðist það að hún missti próf útaf punktum enda fékk hún aldrei frið. Hún þurfti að fara í ökuníðingsskóla og taka prófið aftur eftir 3 mánuði.

Þegar hún var að verða 18 þá fór hún á Ljósanótt með vinkonunum og var niðrí bæ á röltinu og hún spurði mig hvort hún mætti drekka einn Breezer og ég sagði já, taldi það ekki hættulegt. Hún var búin með 3 sopa þegar hún var handtekin. Hún var sú eina sem var handtekin en allir að drekka Breezer og það var hringt í mig og mér sagt að sækja hana dauðadrukkna, sem hún var ekki.

Ég sagði hún væri ekki drukkin frekar en ég en nei, þeir rifu bara kjaft, skipuðu mér að fara með hana heim. Ég sagði þeim að sanna þetta og láta hana blása bara svona sanna sitt mál, hún var samt bara fótgangandi, nei þeir vildu það ekki. Ég skutla henni aftur til vina sinna niðrí bæ og þá labbar lögregluþjónn á eftir henni allt kvöldið, ætlaði nú að grípa hana ef hún drykki. Þeir handtóku hana margsinnis fyrir smámuni fyrir 18 ára og hentu henni í klefa en aldrei létu þeir mig vita, af því eina skiptið sem þeir hringdu var þegar hún drakk 3 sopa. Ég vissi alltaf ef hún svaraði ekki að þá væri hún á stöðinni.

Þetta ágerðist og versnaði ár frá ári þannig að mig grunaði hreinlega að það væri staðsetningabúnaður í bílnum, hún kom til mín var svo bara á leið heim og var stoppuð. Þeir vissu alltaf hvar hún var, einu sinni sótti hún dóttur vinkonu minnar á skólaball í MH og frá Hafnarfirði út í Keflavík var hún stoppuð 4 sinnum. Hún hefur verið meisuð í umferðareftirliti, hún hefur verið svo illa farinn eftir þá eftir handtökur að hún var oft blá og marin.

Héldu að Aníta væri að fela sig í skottinu á bílnum

Eitt skiptið var vinur hennar á bílnum hennar og þeir stoppuðu hann og báðu um að kíkja í skottið Aníta átti þá að vera fela sig í skottinu skil ekki af hverju hún ætti að gera það. Svo gerðist það einu sinni hún var að labba á götu í Keflavík með vini sínum, þá kemur allt í einu lögreglumaður hlaupandi út úr einu húsinu. Hann bjó þar og handtók hana þó hann væri í fríi en hann hélt því fram hún hefði verið að fara rispa bílinn hans en þau voru nú bara á leið í partý. Hann hringir á aðstoð og Anítu var hent í klefa eins og oft áður en hann fór með vin hennar á rúntinn og sagði honum að velja betur vinina hún væri vandræðagripur.

Þetta er allt svo galið því hún hefur aldrei verið í rugli og nánast varla hægt að segja hún drekki, svo yfir eitthvað tímabil höfðu þeir rosalega gaman að því að taka úr henni blóðprufur. Þeir stoppuðu hana í eftirliti eða fyrir að gefa ekki stefnuljós eða eitthvað smáræði, hentu henni svo í klefa. Mig minnir að blóðprufurnar séu 23 og þær eru allar hreinar enda hefur hún ekki verið í fíkniefnum. Síðan fóru þeir að gera ítrekaðar húsleitir fóru að gefa í skyn að hún hlyti að vera selja dóp og gerðu nú eina ólöglega húsleit sem náðist á upptöku var sýnd í Kveik. Leituðu um kl 10 um morgun en fengu húsleitarheimild kl 16 um daginn, hún hefur bara ekki fengið stundlegan frið síðan hún varð 17 ára.

Síðan gerðist það hún lenti í alvarlegu slysi 2022 en það var keyrt fyrir hana og hún slasaðist illa og datt út af vinnumarkaði. Þá fór hún að eiga erfitt andlega. Hún var ekki sátt að geta ekki unnið og lögreglan auðvitað hélt sínu striki og hún var stoppuð áfram endalaust og endalaust í klefa. Svo var það í eitt skipti sem hún var stoppuð og hún stoppaði og þá keyrði lögreglumaðurinn á brettið á bílnum hennar. Hann sagði svo við hana „Þú áttir að stoppa“ og Aníta sagði að hún hefði verið stopp. Það var ekki hægt að fá nein gögn um þetta og hún sat uppi með tjónið.

Tugir skipta í fangaklefa

Þeir hafa stoppað hana í heildina hátt í 300 sinnum, veit ekki hvað hún hefur oft setið í fangaklefanum í Keflavík það eru örugglega nokkrir tugir skipta ef ekki 100 sinnum. Á þessum tímapunkti var hún orðin ansi veik andlega og hætti að geta tekið á þessum ofsóknum og fór þarna og braut einhverjar rúður og eitthvað til að hefna sín enda orðinn ansi bitur, sem ég skil fullkomlega eftir þessa meðferð.

Síðan gerðist það að hún fór að vera í sjálfsvígshættu og er að hringja á sjúkrabíla útaf því að hún var að skaða sig en það endaði oft skrautlega. Í eitt skiptið var hún um nótt niðri við skóla að skera sig, guggnar og hringir á sjúkrabíl þeir senda á hana sérsveitina sem skaut hana niður með gúmmíkúlu. Hún fékk sár á hálsinn og kæru fyrir brot á vopnalögum af því hún var með hníf sem hún ógnaði engum með nema sjálfri sér. Í eitt skiptið hringdi hún á sjúkrabíl, þá búinn að fletta skinninu af sér á annarri löppinni, eiginlega frá mitti og niður og taka líka nokkra lyfjapoka sem hún átti, bara lyf sem hún var á og var nánast útúr heiminum. Þá kærðu þeir hana fyrir að sparka í lögreglumann og sjúkraflutningamann. Bráðamótakan hringdi í mig og bað mig að sækja hana útaf geðdeild sem neitaði að taka við henni. Hún var svo dofin að ég set stórt spurningamerki við það hvort hún hafi verið fær um að sparka frá sér. Aníta er líka með Pots sem gerir það að verkum hún er alltaf með mjög mikinn svima stendur varla undir sjálfri sér.

Mér finnst ansi skrítið hvernig þeir hafa komið fram í 7 ár og núna síðustu ár hafa þeir vitað að hún er fárveik, nánast í stöðugri sjálfsvígshættu og þeir bara gera í því að reyna finna eitthvað til að kæra hana fyrir og stoppa hana stanslaust. Ég er sjálf 50 ára hef verið stoppuð tvisvar á minni ævi.

Í eitt skiptið sem Aníta var stoppuð var hún á Faxabraut og var það atvik í alla staði mjög skrýtið. Hún keyrði framhjá lögreglubíl við upphaf götunnar og var svo stoppuð við enda götunnar af öðrum bíl á 37 km hraða og fékk tvær sektir á einni götu. Hún er búinn að borga margar milljónir í sektir og rugl sem tengist lögreglunni og við erum núna í málaferlum gegn lögreglu. Lögfræðingurinn er kominn með öll gögn og þetta er víst bara galið og bara mjög áberandi þetta séu ekkert annað en ofsóknir og einelti. Hún á eftir að fá skaðabætur en peningarnir eru ekki málið heldur hún fái uppreisn æru og þeir taki ábyrgð á þessu einelti. Núna er hún búinn að sitja inni á Hólmsheiði fyrir í raun að vera kalla eftir hjálp sem hún fékk aldrei og geðdeild segir bara alltaf nei. Þeir taka við henni núna í 2 daga, aðra hvora viku en hún sat fyrstu 10 vikurnar í stanslausri einangrun útaf sjálfsvígshættu. Heilsan hefur versnað gífurlega og hún er farin að sjá ofsjónir og fá martraðir. Eftir að ég fór með þetta í fjölmiðla er hún aðeins minna í einangrun en er sett í einangrun af og til. Fangaverðirnir mega eiga það að þeir eru allir rosalega góðir við hana það er alla vega gott. Eina ástæðan sem ég held þeir hafi til að halda hún selji fíkniefni er af því hún er alltaf á flottum bílum, á núna BMW. Hún bauð þeim einu sinni að sjá bankareikninginn hennar til að sjá hvaðan hún fengi peninga en hún fékk líka slysabætur eftir bílslysið.

Þetta er frásögn móður Anítu, Klöru, en dóttir hennar hefur verið á Hólmsheiði frá því 2. september síðastliðinn.

SHARE