![Screenshot 2021-01-18 at 11.54.17](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/Screenshot-2021-01-18-at-11.54.17-640x612.jpg)
Ég hef gert þessa uppskrift í mörg ár. Fann hana í bók frá “Kokknum án klæða” Jamie Oliver og grátbiðja fjölskyldumeðlimir mig um að hafa “Jamie Oliver kjötbollur” í matinn, reglulega. Við reynum að hafa hlutina glútenlausa á þessu heimili þannig að fyrsta sem við gerum er að skella okkur í Bónus og kaupa glúten laust pasta og brauð.
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/129576565_378657000103921_4857921465622152721_n.jpg)
Uppskrift:
Kjötbollurnar
- 1 pakki af nautahakki
- 2 stk brauðsneiðar. ( Þarf ekki að vera glútenlausar)
- 2 msk Oregano
- 1/2 tsk cummin
- 1/2 tsk Chillipipar eða Cyannepipar
- 1 msk ferskt rósmarín (má vera þurrkað)
- 1 eggjarauða
- 4 msk olífuolía
- 2 lúkur fersk basalika
- 1 msk dijon sinnep
- salt og pipar
Sósan
- 2 dósir af niðursoðnum krömdum tómötum
- 1 stk hvítlauksrif
- 5 msk Olífuolía
- 1 lúka Basilika
- 2 tsk Oregano
- salt og pipar
- Tagliatelli pasta ( þarf ekki að vera glútenlaust)
- Mosarella ostur (Kúla)
- Parmasean ostur
Aðferð:
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/128767662_1242700079448077_4840853440662016290_n.jpg)
- Setjið allt þurrefnið sem fara í kjötbollurnar í matvinnsluvél og tætið.
- Bætið svo nautahakkinu, eggjarauðunni, dijonsinnep og olífuolíunni við og tætið vel saman.
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/129435542_2816923348579240_4998756219171871305_n-1024x768.jpg)
- Þrífið ykkur vel um hendurnar og búið til litlar bollur í lofanum sem þið svo steikið á pönnu með nóg af olíu á.
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/129597351_385406369382923_2466664724408307010_n.jpg)
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/129301224_167190105108323_2235261102129561445_n-1024x1365.jpg)
- Skolið skálina út matvinnsluvélinni og bætið öllu því sem á að vera í sósunni í skálin og tætið og blandið vel saman.
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/129334560_731196050822549_2268610515596155478_n-1024x1365.jpg)
- Þegar sósan er tilbúin setjið þá kjötbollurnar í eldfastmót og hellið sósunni yfir. Skerið þá Mosarella kúluna í þunnar sneiðar og leggið yfir kjötbollurnar. Setjið svo í ofn á c.a. 170 gráður í um 5-10 min eða þar til Mosarellaostur bráðnar yfir kjötbollurnar.
- Á meðan þið bíðð eftir kjötbollunum sjóðið Taglitelli pasta. Mér finnst best að setja vatn í pott og ná suðinnu upp og setja vel af salti í vatnið. Setja svo pastað í sjóðandi vatnið og sjóða í c.a. 10 min. (stendur of á pakkningunni). Drena svo vatnið frá pastanum, skellua smá olífuolía á það og strá svo smá salti og pipari yfir og planda saman.
- Því miður vorum við svo gráðug að við gleymdum að taka mynd af réttinum tilbúnum á disknum. En fyrst set ég pasta á disk og helli svo kjötbollunum með sósunni og ostinum yfir pasta. Svo er náttúrlega alltaf gott að hafa Parmasean ost við hendina og rífa yfir.
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2021/01/maxresdefault-5-1024x576.jpg)
![](https://www.hun.is/wp-content/uploads/2022/01/Screenshot-2022-01-05-at-12.11.47.jpg)
Kidda Svarfdal er ritstjóri og eigandi Hún.is en hún er frá Djúpavík á Ströndum. Hún fór á bát og snjósleða í skólann þegar hún var lítil og var í heimavist í Finnbogastaðaskóla. Hún hefur haft gaman að krossgátum og íslensku frá unga aldri og hefur skrifað ljóð, sögur, pistla og fleira. Ásamt því að skrifa á Hún.is er Kidda, ásamt fjölskyldu sinni, mikið í Djúpavík þar sem fjölskyldan er með ferðaþjónustu.